Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Johnny Depp

í Fræga fólkið fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Jú hann er ennþá nógu flottur til þess að 13 ára gegjur séu slefandi yfir myndunum hans. Veit samt ekki alveg hvernig þetta verður þegar hann verður kominn á þann aldur sem t.d. DeNiro og Pacino eru á. Kannski verður hann þá orðinn svona “legend” eða þá bara ein að þessum gleymdu stórstjörnum.

Re: Johnny Depp

í Fræga fólkið fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Þeir eru hreinlega bara ekki nógu sexý til þess að það verði skrifaðar “gelgju greinar” um þá, plús það að þeir eru ekki búnir að vera það lengi að og hafa ekki fengið þennan “legend status” eins og t.d. Robert DeNiro og Anthony Hopkins.

Re: Vitiði hver?

í Jazz og blús fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Og hvað er það?

Re: Fór einhver á Jazzhátíð Reykjavíkur?

í Jazz og blús fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Ég gæti alveg gert það.

Re: Fór einhver á Jazzhátíð Reykjavíkur?

í Jazz og blús fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Hvaða rugl er það, ég hef meira að segja farið með pabba mínum og litla bróður mínum sem var þá bara 10 ára á tónleika á Nasa.

Re: Fór einhver á Jazzhátíð Reykjavíkur?

í Jazz og blús fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Þú hefðir bara átt að fá einhvern eldri en 20 til að fara með þér. Ég hef t.d. oft farið með pabba mínum og afa mínum á Jazz tónleika þar.

Re: Fór einhver á Jazzhátíð Reykjavíkur?

í Jazz og blús fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Ég fór á Stórsveit Reykjavíkur, Kurt Elling og Pólska Tríóið. Ég fer svo líka á Útlendingahersveitina en þeir tónleikar eru líka í sambandi við Jazzhátíðina þó að þeir séu ekki fyrr en 14.

Re: Hvaða mynd er þetta? (easy písí)

í Kvikmyndir fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Hvenær í myndinni var þetta atriði? Ég var einmitt að horfa á hana fyrir stuttu síðan og man ekkert eftir þessu.

Re: Kvikmyndir á spænsku

í Kvikmyndir fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Tékkaðu á myndum eftir Pedro Almodóvar. Svo er Amores Perros frekar góð.

Re: Hvaða mynd?

í Kvikmyndir fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Kill Bill Vol. 2.

Re: "Keppni" David Lynch: Snillingur eða Sjúkur Pervert?

í Kvikmyndir fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Já Dune er kannski ekki besta mynd í heimi en ég hef allavegana mjög gaman af henni og sérstaklega lengdu útgáfunni sem er mun betri en venjulega. Stanley Kubrick er líka einn af mínum uppáhaldsleikstjórum og ég skrifaði grein um hann hérna fyrir svolitlu síðan.

Re: Partýblús? (og jazz)

í Jazz og blús fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Eitthvert geðveikt Bebop, flottur píanójazz og heavy stórsveitar blús/jazz. Mæli með plötunni Another Day með Oscar Peterson Trio, einhverju funky með Herbie Hancock og svo er auðvitað Kind of Blue möst til að komast í rólegt groove. Annars held ég að þetta mundi nú ekki virka mjög vel í þessu týpíska partíi en ef þetta er fólk sem kann að meta góðan Jazz en ekki einhverjir blindfullir djammsjúklingar þá ætti þetta að virka vel.

Re: "Keppni" David Lynch: Snillingur eða Sjúkur Pervert?

í Kvikmyndir fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Já, ég er búinn að hafa samband við David Lynch sjálfan og er að vinna að ævisögu hans. Hún verður sennilega gefin út í “hardcover” næsta haust og í kilju síðan.

Re: "Keppni" David Lynch: Snillingur eða Sjúkur Pervert?

í Kvikmyndir fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Ég verð nú að viðurkenna að þó líti kannski út fyrir það í greininni þá hef ég ekki ennþá séð The Straight Story enda hefur mér ekki tekist að verða mér út um eintak af henni. En pabbi minn er bráðum að fara til Bandaríkjanna þannig að ég bið hann bara um að kaupa hana fyrir mig.

Re: "Keppni" David Lynch: Snillingur eða Sjúkur Pervert?

í Kvikmyndir fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Já maður, ég sá hana um miðjan dag í tölvunni minni en lokaatriðið hlýtur að vera eitt það óhugnalegasta sem ég hef séð í nokkurri kvikmynd.

Re: Hvaða Mynd?

í Kvikmyndir fyrir 19 árum, 7 mánuðum
George A Romero's The Passion of the Christ?

Re: Roger Ebert

í Kvikmyndir fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Nei, undanfarið hef ég verið að fara í gegnum síðuna hans og leita að myndum sem ég held uppá og örugglega helmingur af uppáhalds myndunum mínum hefur hann gefið skít í. T.d. eru David Lynch og Tim Burton tveir af mínum uppáhalds leikstjórum og meira en helmingur af þeim myndum sem þeir hafa gert og næstum því allar eftir Lynch fá aðeins eina til tvær stjörnur frá honum. Jafnvel myndir sem eru af mörgum taldar meistaraverk eins og Blue Velvet, Big Fish, The Elephant Man, Brazil, A Clockwork...

Re: Trivian?

í Kvikmyndir fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Mér finnst þessi nú vera frekar létt miðað við margar aðrar.

Re: Tattoo/piercing = Leyfi??

í Tíska & útlit fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Ég er í 10. bekk og það eru ekkert smá margir með annaðhvort gat í tungunni/naflanum, tattoo eða bæði.

Re: Eragon?

í Kvikmyndir fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Já ég held að hann hafi byrjað á henni þá en verið 18 ára þegar hún kom út en það er sagt að hann hafi stolið ekkert smá mikið úr t.d. Lord of the Rings. Annars er ég bara að hafa eftir það sem ég hef lesið á netinu, hef ekki einu sinni lesið bókina.

Re: Nasistar?

í Dulspeki fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Já, það er víst friðað þannig að það er bannað að taka niður.

Re: Goodfellas

í Kvikmyndir fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Persónulega myndi ég velja Goodfellas, hún er bara svo miklu skemmtilegri en þó held ég að Godfather myndi nú hneppa gullið ef það ætti að dæma þær svona fræðilega (eða eitthvað svoleiðis) séð.

Re: Star Wars 4-6

í Kvikmyndir fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Hvað er svona hræðilegt við DVD settið, mér finnst það nú bara helvíti flott.

Re: Star Wars 4-6

í Kvikmyndir fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Ég held að það hafi aldrei átt að koma út box sett, bara hver mynd ein og sér. En eins og þú sagðir þá virðist þetta vera algjört rusl, svo á ég líka fyrir bæði box settið sem var gefið út hitt í fyrra og VHS box sett.

Re: Alætur á tónlist?

í Metall fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Ekki taka þetta svona bókstaflega, það er algjör óþarfi að vera móðgaður. Ég hef ekkert á móti death metal eða þeim sem hlusta á hann, mér persónulega finnst þetta bara gjörsamlega HÖRMULEG tónlist en ég virði skoðanir annara og reyni að vera ekki með einhver skítköst.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok