Tattoo/piercing = Leyfi?? Mikið hefur verið spurt um sama efnið, aftur og aftur… Fólk virðist oft ekki lesa fyrri korka/greinar af einhverjum ástæðum og fer strax að spyrjast fyrir um kannski sama efni og er í korknum fyrir neðan.. Til að einfalda þetta aðeins þá langaði mig að skrifa niður nokkra punkta sem vonandi geta svarað spurningum ykkar :)
Ég vil líka taka það fram að þetta eru ekki staðfestar og skráðar heimildir heldur einungis upplýsingar sem koma frá mér sjálfri og það sem ég hef heyrt.. Þetta eru samt basic atriði sem allir ættu í raun að vita, bara eins og þú veist að þú mátt ekki kaupa sígarettur fyrr en þú ert orðin/n 18 ára :) Ef þú vissir þetta ekki fyrir þá veistu þetta allavegana núna :)

1. Það er 18 ára aldurstakmark til að fá sér tattoo og piercing (göt) og það gildir alls staðar..
2. Engin stofa gerir undantekningar frá þessu og þú þarft annaðhvort að koma með skriflegt leyfi frá foreldri/forráðamanni eða foreldri/forráðamaður kemur með þér á staðinn..
3. Ef þú kemur með skriflegt leyfi þá þarftu að skrifa símanúmer því til staðfestingar.

Þetta eru reglur sem eiga að gilda á öllum viðurkenndum tattoostofum hér á landi og þeim er oftast fylgt eftir.. En auðvitað er líka til í dæminu að reglur séu brotnar og þá eru þessar engar undantekningar :) En vertu alltaf viðbúin/n því að þú sért annaðhvort spurð/ur um skilríki eða leyfi þegar þú ætlar þér að fá þér tattoo eða piercing.

Ef þú ætlar að falsa leyfi þá er það þitt mál og þín ábyrgð hvort það komist upp um það. Það er ekki sniðugt að falsa undirskrift og ég veit um dæmi þar sem það var gert og ekkert fattaðist á stofunni. Foreldri manneskjunnar komst hinsvegar að þessu (auðvitað) og hótaði að kæra manneskjuna sem gataði barnið sitt… Þetta er ábyggilega ekki einsdæmi svo ég mæli ekki með því að falsa.. Það er bæði slæmt fyrir þig og gatarann/flúrarann..

So here you go! Ekki spurja aftur hvort þú megir fá þér gat/tattoo en þú ert bara 16 ára.. Svarið er einfaldega NEI
Ef þú mátt ekki fá þér gat eða tattoo, bíddu þá frekar þangað til þú verður 18 ára.. Þá eru allir glaðir :)