Ég veit allavegana um þrjá aðra. Það eru: Jason Todd sem var held ég drepinn af Jókernum Tim Drake Carrie Kelley sem kom fyrst fram í Dark Knight Returns
Jú, sá Jesús sem talað er um í Biblíunni var til og það er staðreynd. Ef þú ætlar að neita því að Jesús hafi verið til þá getur þú alveg eins sagt að Alexander mikli hafi ekki verið til og að Júlíus Sesar hafi ekki verið til, einu heimildar sem við höfum um þá eru jú bara til í bókum. Það eru margar aðrar heimildir en Biblían sem staðfesta það að það var í raun og veru til maður fyrir rúmum 2000 árum sem hét Jesús og bjó á þessum slóðum og að það er sá maður sem Kristnir menn tilbiðja sem...
Hún ætti að vera fáanleg í öllum helstu DVD verslunum og leigum, kíktu bara í Elko, Nexus (ég fékk hana og aðrar Tim Burton myndir þar í DVD tilboðinu þeirra), 2001 eða bara jafnvel BT og Skífuna eða í allar helstu leigurnar.
Já maður, þetta er svona svipað eins og að George Lucas mundi segja að Star Wars væri heilagur sannleikur og stofna Jedi-Akedemíu og síðan færu allir að tilbiðja Yoda.
Jesús var til, það getum við verið viss um alveg eins og það að við vitum það að Napóleon var til. Hinsvegar er það umdeilanlegt hvort hann hafi verið sonur guðs.
Borgaleg ferming er afsökun fyrir þá sem eru trúleysingjar en eru afbrýðissamir út í fermingarbörnin til þess að fá pening. Þetta er svona svipað eins og það að Múslimar færu að halda jól vegna þess að þeir vildu líka fá gjafir.
Gaur, þegar maður er stjórnandi Kvikmyndaáhugamáls á einni stærstu spjallsíðu Íslands þá segir maður einfaldlega ekki svona, það er bara hreint og beint guðlast.
Í fyrsta skipti sem ég sá hana fannst mér hún vera besta mynd sem ég hafði nokkurn tíma séð, í annað skiptið fannst mér hún alls ekki eins góð en í þriðja skiptið skildi ég loksins afhverju hún er dýrkuð svona mikið.
Nákvæmlega, fólk er alltaf að segja að hún sé versta mynd Kubrick's og að hún sé ömurleg mynd osfrv. en persónlega finnst mér hún vera ein sú besta eftir Stanley Kubrick og bara ein af mínum uppáhalds myndum.
Ég bara hreinlega skil ekki svona lagað. Til hvers þurfa þessar Hollywood stórstjörnur svona viðbjóðslega mikið af peningum, ég meina hvað hefur leikari að gera við 60 milljónir dollara. Þegar menn eru orðnir svo ríkir að þeir geta bókstaflega skeint sér með peningum, hvað hafa þeir þá að gera með svona mikið.
Ég sá þá félaga síðasta fimmtudag á fyrstu tónleikum Múlans þetta haust. Spilamennskan var frábær í alla staði og stóðu þeir sig mjög vel allir saman en eins og Latín tónlist getur nú verið frábær þá er hún líka mjög þreytandi ef maður hlustar of mikið á hana. Undir lokin var ég líka orðinn heldur þreyttur á þessu enda er það aðeins of mikið af því góða að hlusta á dúndrandi Havana Jazz í meira en tvo klukkutíma.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..