Ég tók linuxdiskinn úr 200mhz sírópsvélinni og lét hann í aðra vél 700mhz og ræsti. Fyrst komu tilkynningar um breyttan vélbúnað og hvað ég vildi gera í málinu og svo flaug kerfið í gang með miklum gný og allt glimrandi fínt. þetta bara svínvirkar. Ég reyndi þetta sama fyrir stuttu með W2k disk. Þ.e setti diskinn í aðra vél með þeim afleiðingum að Microsoft fekk kast og létu eins og talibanar og sögðu að þetta væri stórhættulegt ef ekki bara bannað og skipuðu mér að slökkva á vélinni hið...