Ég er sammála mörgum hérna. Það eru svo mörg atriði sem eru SVO góð. En allavega finnst mér þetta alveg æðislegt: Það er þegar Ross og Rachel eru í þvottahúsinu (Ross að reyna við Rachel) og Rachel er nýbúin að fá körfuna sína aftur af freku kellingunni. Rachel kyssir Ross mömmu-koss á munninn og hann labbar á hurðina á þvottavélina og dettur í gólfið. Og svo stendur hann svo hratt upp aftur. Ég get hlegið endalaust af þessu atriði. Ég spóla alltaf aftur til baka og horfi nokkrum sinnum á þetta :)