Ok, halló allir!

Ég ætla bara að hafa þetta stutt hér so I´m cutting right to the case!

Ég er alveg sjúklega hrifin af gaur sem ég þekki voða lítið. Við erum í sama vinahóp og þannig þekkjumst við. Ég féll fyrir honum um leið og ég sá hann og verð hrifnari og hrifnari í hvert sinn sem ég sé hann.

Ég er í skóla á Akureyri en bý út á landi þannig að ég fer að fara heim í sumarfrí. Hann býr hinsvegar á Akureyri.

Nú þarf ég ykkar hjálp!!! Hvernig á ég að reyna við gaurinn, hvernig á ég að láta hann sjá hvað mér finnst um hann án þess að það sé fullkomlega aulalegt…skiljiði hvað ég meina.

Ég hef bara 2 vikur til stefnu, meira að segja bara tvær prófa-vikur, áður en ég fer heim…hvað á ég að gera????


HJÁLP, HJÁLP!!!!

kv. goozie