Það er rétt, myndin er aulalega ýkt að öllu leyti, en það er eitt sem mér fannst skemmtilegast við hana. Hún hafði svo svakalega mikinn húmor, bæði viljandi og óviljandi. Mitt uppáhald var þegar maðurinn talar við konu sína í búðinni og notar þá myndlíkingu að “eitthvað sé að draga þau í sundur,” svo BAMM! jarðskjálfti sem opnar risastóran gýg, akkúrat á milli þeirra. Priceless!