Ég held að það sé mjög skynsamlegt hjá þér að byrja smátt. Bræðurnir Ormsson selja Celestron sjónauka sem eru sumir mun ódýrari en Meade (svipaðir að gæðum og sjónaukarnir frá Meade). Ódýru sjónaukarnir eru góðir byrjendasjónaukar, t.d. til þess að kíkja á Satúrnus og Júpíter. Gott er að útvega sér fyrst stjörnukort (t.d. í Íslenskum stjörnuatlasi eða kennslubókum um stjörnufræði) og átta sig á helstu stjörnumerkjum áður en kemur að því að kaupa sjónauka. Svo er ýmiss konar fróðleikur um...