Sælir! Þeir framsóknarmenn segja sjálfir að þeir munu eyða um fimmtíu til sjötíu milljónum í þessari kosningabaráttu. Hins vegar var einn snillingurinn sem er næstum öllu vanur í þessum bransa sem tók það að sér að skoða auglýsingaurmulinn sem framsókn býr yfir, á netinu, flettiskiltum, húsum, dagblöðum og sjónvarpi. Hann skaut á að þetta væri alls ekki fimmtíu til sjótíu milljónir. Þær auglýsingar sem eru í gangi núna verða í gangi fram yfir kosningar þannig að þetta færi yfir 100.000.000 kr.-