Ég var að velta því fyrir mér hvort einhver hér ætti Pioneer NS-DV55 DVD spilara/heimabíó? Ég keypti mér svona sett í vor. Ég er mjög ánægður með það í flesta staði nema að alltaf þegar ég spila disk þá koma við og við skálínutruflanir í myndina. Truflanirnar eru mismiklar og eru stundum sterkar, stundum daufar og stundum engar. Ég hélt alltaf að þetta væri sjónvarpstækið mitt sem væri orsökin. Síðan lenti ég í því að sjónvarpstækið mitt bilaði (sem aldrei fyrr) og fékk ég þá að láni nýtt...