Ég náði í Wolfenstein MPTest2 um daginn og verð að segja að þessi leikur er algjör snilld. Hins vegar get ég einhverja hluta vegna ekki notað zoomið á sniperrifflinum. Hefur einhver annar lent í þessu? Þetta virðist virka hjá öllum sem maður er að spila við á netinu. Mér datt helst í hug að þetta gæti verið útaf íslenskunni í OsX.1.

Öll hjálp vel þegin.