Falcon sat hugsandi, hann var að rifja upp hvernig faðir hans leit út þegar hann kom heim, allur brendur og andlitið sem Falcon þekkti sem barn var horfið, í stað þess kom rautt andlit sem var svo illa brunnið að faðir hans leit út sem skrímsli. Falcon leit á Aramill og virti hann fyrir sér góða stund. “Hann er þó Álfur, það er gott en hvað gerir hann” hugsaði hann með sér. “Aramill, því miður lítur það þannig út núna, nema að það séu einhverjir sem eru jafn miklar hetjur og þið, eða jafn...