Skil þetta vel, ég bjó í bandaríkjunum í æsku, og var látinn sleppa 5. bekk því það var ekkert challenge í neinu… svo kemur maður til íslands 12 ára og er bara settur í 7. bekk, með jafnöldrum, þó að ég hefði verið bekk á undan úti. Fannst það afskaplega asnalegt að ég yrði að vera árinu lengur með skólann, en svo kynntist mar góðum vinum og hætti að vera fúll yfir því. Hinsvegar spáir maður enn þann dag í dag hvernig lífið væri hefði ég byrjað í 8. bekk en ekki 7.