Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

smeppi
smeppi Notandi frá fornöld 39 ára karlmaður
1.038 stig Hefur áhuga á: Klingonum
indoubitably

Re: >< hjelp

í Blizzard leikir fyrir 16 árum, 9 mánuðum
Login serverar eru búnir að vera að skíta á sig uppá síðkastið jú. En vér gerðum 4 íslendingar nokkur heroic með einhverjum norsara og það lögguðu allir smávegis nema hann. Ekkert alvarlegt, en afskaplega pirrandi. Sem betur fer ágætis grúppa svo það var ekki mikið um mistök þar sem 1-2 sek getur verið gamebreaker.

Re: Hvernig skal fjarlæga csrss.exe?

í Windows fyrir 16 árum, 9 mánuðum
Þú gætir verið að ruglast. Það eru til ormar sem þykjast vera crsrss.exe, en eru eitthvað allt annað. Besta leiðin til að komast að því er að skjóta upp Task Manager (ctrl+alt+del) og velja Processes tabbinn. Þar á bara að vera einn crsrss.exe. Ef það eru fleiri, þá er ágætis praktík að hægri smella bara og velja End Process. Ef það er hinn eini sanni ættirðu að fá villu þar sem Windows segir þér að þetta sé critical file og ekki sé hægt að enda processinn.

Re: Rogue arena

í Blizzard leikir fyrir 16 árum, 9 mánuðum
Já ég skil hvað þú átt við. Sjálfur nenni ég bara að gera 5 manna, að vera healer í raid er eins og að spila whack-a-mole, ekki mjög gaman til lengdar.

Re: Rogue arena

í Blizzard leikir fyrir 16 árum, 9 mánuðum
Hafa ekki rogues alltaf verið bestir með pve vopn? Skil ekki hvað vandamálið er. Annars er ég sammála því sem Slingthor segir, Blizz virðast gefa svolítin skít í pvp í Wotlk, það sést nú bara best á arena set lookinu..

Re: Vantar smá tank hjálp

í Blizzard leikir fyrir 16 árum, 9 mánuðum
Þú um það. Mér finnst það talsvert leiðinlegra að missa dps vegna þess að ég þarf að spam heala tankinn ef einhver pullar extra, er fearaður eða einhver klúðrar einhverju almennt.

Re: Vantar smá tank hjálp

í Blizzard leikir fyrir 16 árum, 9 mánuðum
“Þarft bara hp fyrir heroics” Sem healer sem hefur gaman af því að pugga heroics, þá verð ég að segja að mig langar bara ekkert til þess að heala þig.

Re: fast í authenticating

í Blizzard leikir fyrir 16 árum, 9 mánuðum
Ef þið búið til battle.net account (eu.battle.net) og mergið wow accountinn ykkar inní það, þá held ég að það lagist. Ég heyrði það amk, prófaði það og ekki fengið authenticating síðan.

Re: Amagad

í Tilveran fyrir 16 árum, 9 mánuðum
Þegiðu busi

Re: versta lifsreynsla ykkar?

í Tilveran fyrir 16 árum, 9 mánuðum
Já vá maður, manni leið ekkert smá skringilega.. En hann er svo sniðugur, er viss um að hann kemur aftur, alveg jafn klikkaður :D

Re: versta lifsreynsla ykkar?

í Tilveran fyrir 16 árum, 9 mánuðum
Úff, það var svakalegt…

Re: soldið skemtileg pæling

í Heimspeki fyrir 16 árum, 9 mánuðum
Verst að núna eru eðlisfræðingar komnir með kenningu (M-Theory) sem segir að það séu allt í allt 11 víddir.

Re: Slingi presta interface development

í Blizzard leikir fyrir 16 árum, 9 mánuðum
Ef þú hefur í hyggju að heala eitthvað (eins og alvöru karlmenn gera) þá mæli ég með að þú stillir Unit Frames á að sýna hversu mikið líf targetið (og/eða party) hefur misst.

Re: Fjölgunarstjórnun

í Heimspeki fyrir 16 árum, 9 mánuðum
Miðað við hvað þú veist svo, tja allt um þetta málefni, þá þykir mér það furðulegt að þú setjir þetta í svona þrjá einfalda flokka. Þetta er voða sætt hjá þér, en þar sem þú þykist hafa þetta allt á hreinu þá má ég til með að gagnrýna þetta og benda þér á að þetta er talsvert flóknara. “Fita” er ekkert bara “fita”, til dæmis. Mig langar líka að henda upp einni retórískri spurningu fyrir þig. Þar sem örugglega flestir menn neyta aldrei á ævinni lýsis, þá er það vitað mál að það er alls ekkert...

Re: Fjölgunarstjórnun

í Heimspeki fyrir 16 árum, 9 mánuðum
Og mér sýnist þú vera að segja þetta gegn skoðun mótaðri af því að alast upp í samfélaginu sem þú býrð því. Ef þú ert svona hippi þá ber ég fulla virðingu fyrir því, það er alveg kúl að vera svoleiðis. Ég var nú að meina að skyndibitar væru bragðgóðir, það gera nú flestir sér grein fyrir óhollustunni sem yfirleitt fylgir þeim. (Með fyrirvara um að hægt sé að túlka óhollustu á ýmsa vegu). Ég hef nú ekki kynnt mér næringarfræði sérstaklega, en miðað við það sem ég hef kynnt mér líffræðilega,...

Re: Fjölgunarstjórnun

í Heimspeki fyrir 16 árum, 9 mánuðum
“En það er áætlað að ef allur okkar matur væri framleiddur með þessum svokölluðu ‘lífrænu’ aðferðum þá gætum við einungis brauðfætt 4 milljarða.” Taka þessar tölur tillit til þróunnar sem gætu orðið í tilteknum málum á komandi árum / áratugum, eða eru þetta vangaveltur uppá hvað myndi gerast ef breytingin yrði nú og þegar ?

Re: Fjölgunarstjórnun

í Heimspeki fyrir 16 árum, 9 mánuðum
Við erum kaldhæðnin lifandi. Svo gáfuð, en svo rosalega heimsk..

Re: Fjölgunarstjórnun

í Heimspeki fyrir 16 árum, 9 mánuðum
Já ef allir ætla að verða rúgbrauð. Manneskjan er þó kjötæta og ætti að hegða sér þannig. Annars þarf að taka með í dæminu verksmiðjur sem framleiða allskyns vítamín og dótarí. Þó ég efist að vísu ekki um að jörðin sé nógu stór fyrir manneskjuna, hún er það, þar liggur enginn vafi á. Hefur alltaf verið og er ekki. Þar sem menn segja að vandamál sé með að sumir séu ekki með nóg að borða, þá liggur það vandamál í því að sumir séu með of mikið að borða (við t.d.). Spurningin ætti í raun og veru...

Re: PVP healer..

í Blizzard leikir fyrir 16 árum, 9 mánuðum
Það er hægt að reikna það út með tiltölulega einfaldri formúlu;Best PvP Healer == Disc Priest

Re: Goblin og Worgen

í Blizzard leikir fyrir 16 árum, 9 mánuðum
Sammála. Mikið búinn að spá í þessum Goblin Shaman líka, þeir eru bara to awesome!

Re: Vandamál með uppsetningu í gegnum USB drif

í Linux fyrir 16 árum, 9 mánuðum
Nú heyrðu, ég er kannski að nota einhverja gamla útgáfu, eða er hreinlega farinn að kalka! Var samt að spá í að henda Ubuntu 9 á kubb og setja það loksins upp hjá mér. Þá getur maður kíkt á þetta í leiðinni :)

Re: Vandamál með uppsetningu í gegnum USB drif

í Linux fyrir 16 árum, 9 mánuðum
Ég man nú ekki eftir því að hafa séð einhverja sérstaka UNetBootin valmynd í startup, þó ég hafi nú notað þetta oftar en einu sinni og oftar en tvisvar..

Re: Ubuntu 9.04 á MacBook 2,1

í Linux fyrir 16 árum, 9 mánuðum
Hehe, þetta gæti hreinlega verið rót vandamálsins að eiga í erfiðleikum með að tengjast þráðlausu neti. Satt best að segja veit ég ekki betur en að þetta sé hreinlega ekki þráðlaust netkort! :) Var ekkert annað úrtak úr lspci? Ertu þá kannski til í að pósta ‘iwconfig’ og ‘ifconfig’ ?

Re: Ubuntu 9.04 á MacBook 2,1

í Linux fyrir 16 árum, 9 mánuðum
Ef þú gætir tekið fram hvaða wlan kort þú ert að nota þá er hugsanlegt að hægt sé að hjálpa þér með það vandamál. Skipunin ‘lspci | grep net’ gefur ágætis upplýsingar um það. Það á að vera til eitthvað keyboard layout fyrir macca, ertu búinn að prófa að stilla á það (System > Preferences > Keyboard)? Annars þarf að edita einhverja fæla sem ég kann ekki alveg nógu mikið á til að hjálpa þér með, svona in a jiffy allavega. En þriðja vandamálið gæti verið codec tengt. Ertu búinn að setja inn...

Re: Ochre Skeletal Warhorse

í Blizzard leikir fyrir 16 árum, 9 mánuðum
Það er einhver óskiljanlegur regnbogafílingur í þessu mounti..

Re: Cataclysm !!!! :ooooooooo

í Blizzard leikir fyrir 16 árum, 9 mánuðum
Já þú veist.. Svona dodgy.. Æj þú veist.. Snemmbært, þó það sé kannski ekki þýðing uppá marga fiska.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok