Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

smeppi
smeppi Notandi frá fornöld 39 ára karlmaður
1.038 stig Hefur áhuga á: Klingonum
indoubitably

Re: Spillt Æska

í Tilveran fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Ég er með dredda, þarf ekki að hafa áhyggjur af því að verða “ógnað af 7-8 ára krökkum” :D

Re: Lady Liadrin

í Blizzard leikir fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Kúl, grats.

Re: Einhver sem notal Linuz og spilar WoW?

í Blizzard leikir fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Þú eyðir bara WoW möppuni til að uninstalla, er ekki flóknara en það :p C drivið í Wine, eða eftirherman af því ætti að vera inná /home/notandi/.wine/einhverstaðarhérna. Og ertu viss um að þú sért með rétta slóð? Ef þú ert að reyna að fara inná (cd) /mute/destkop/wowinstall, þá ertu að reyna að fara inná rótina (/), síðan í möppu sem heitir mute og þaðan fram eftir götunum. Þykir frekar ólíklegt að það sé mappa sem heitir mute inná /, það væri þá eitthvað sem þú hefur búið til. Það sem mér...

Re: Playlistinn minn

í Músík almennt fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Æji troll..

Re: nýr notandi hér

í Linux fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Já, ég held að þessi síða sé bara eitthvað léleg. Þú ættir að finna driver skrárnar á geisladisknum sem fylgdi með kortinu. Líklega í möppu sem heitir driver eða drivers :p Annars er það bara Google.

Re: Vandamál með WoW

í Blizzard leikir fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Það er líklega eitthvað að ofhitna hjá þér. Opnaðu tölvuna og sæktu skrúfjárn og ryksugu :D Tengist Warcraft ekki neitt held ég.. Að öllum líkindum hardware problem. Gætir náttúrulega prófað að reinstalla og updeita alla drivera. Skanna fyrir vírusum og allt það. En ég efa að það virki.. Kemur kannski blár skjár með hvítum stöfum rétt áður en tölvan restartar?

Re: Playlistinn minn

í Músík almennt fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Hún gerir hana einfaldari, tekur allt fúttíð úr henni. Tilgangurinn með tónlist er ekki að vera einhver spes tónlist. Ekki að höfða til einhvers spes fólks. Ekki að verða flokkuð niður og seld eins og fucking niðursuðudósir í búðum. Blues, jazz, óperur, ok, það eru guidelines. En þegar fólk er farið að rífast um, bara til dæmis hvort einhver þungarokkshljómsveit sé “dauðametall” en ekki “metalcore” þá er þetta komið útí öfgar. Skiptir bara ekki einu einasta máli. Þetta er tónlist, það er það...

Re: Einhver sem notal Linuz og spilar WoW?

í Blizzard leikir fyrir 19 árum, 2 mánuðum
https://help.ubuntu.com/community/WorldofWarcraft Complete HOWTO, mjög góð. Bætt við 4. apríl 2007 - 12:18 Runnar allavega úber hjá mér, svipað fps og í Win, bara töluvert meira smooth. EN, þessi leikur er gerður fyrir Win, (eða mac, þú ert líklega með Win útgáfu), það er ýmislegt ábótavant varðandi það, það þarf (held ég) að breyta xorg.conf eitthvað til að sumir takkar virki sem hotkeys, sem og þú kemur til með að þurfa að breyta Config.wtf til að breyta upplausninni, sem dæmi. Líka gott...

Re: Playlistinn minn

í Músík almennt fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Nei, þú bara ert að styðja við hreyfingu þess með því að hjálpa til við flokkun á tónlist.

Re: Dautt líf

í Heimspeki fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Ok, þú ert kannski svona go science gaur, ekki alveg sömu pælingar og ég er í :p

Re: Fáfræði Wicca fylgjenda

í Dulspeki fyrir 19 árum, 2 mánuðum
“Í öðrum orðum Eclectic Wicca er ekki raunverulegt Wicca, það er nútíma markaðsbrella sem snjallir höfundar hafa upphafið til að græða peninga og selja bækur” Það er fínt að þú skulir trúa því, en afhverju að dæma náungann fyrir það? Bara pæling..

Re: Playlistinn minn

í Músík almennt fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Fýlaru tónlist sem er framleidd á færibandi? Þá meina ég lögin og textarnir, ekki plöturnar sjálfar.

Re: Playlistinn minn

í Músík almennt fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Þetta er nú ekki aalveg sambærilegt dæmi..

Re: Sólargeislar

í Geimvísindi fyrir 19 árum, 2 mánuðum
“þá tæki það okkur svona 1000 fallt lengur” Það fer jú eftir því hversu hratt þú labbar…

Re: Mikilvægi nákvæms orðalags

í Heimspeki fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Lélegt dæmi, en “Hún drakk mjólkina” “Mjólkin var drukkin af henni” Sama setning skiluru, en mismunandi orðalag? Ég held það, en gæti að sjálfsögðu verið í einhverju rugli :p

Re: Dark Side könnunin...

í Gullöldin fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Breathe reprise er eiginlega bara endirinn á Breathe. Sama laglína, sami taktur, sami hraði, sömu hljómar, bara spilað ogguponsu öðruvísi, ekki nákvæmlega sami synth td, en þó svipaður. Svipað og að platan endar alveg eins og hún byrjar. Sama sampl spilað aftur á bak. Mig minnir líka að fyrsta gítarsólóið sé einnig seinasta gítarsólóið.

Re: Dautt líf

í Heimspeki fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Ég vill nú fá að meina að þeir séu fimm, eldur, vatn, jörð og vindur/hreyfing þessir grunnþættir sem allir kannast við, en síðan andinn (guð, draugar, galdrar og allt það dót) sem vakir yfir öllu. Vísindin vita bara ekkert um þennan anda, því hann mælist ekki með flóknum tækjum og er ósýnilegur :) Svo var fólk líka brennt fyrir að skynja andann í gamla daga, þannig sumir eru feimnir við að koma útúr skápnum með þetta, sem er kannski bara ágætt. En þetta kemur umræðuefninu bara alls ekkert...

Re: Mikilvægi nákvæms orðalags

í Heimspeki fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Mér er fúlasta alvara. Ef þú ætlar að setja fram einhverja góða kenningu verður þú að gjöra svo vel að passa þig á því að hún verði ekki misskilin og allt farið í köku. Hins vegar svona einföld spurning, jújú, það er hægt að misskilja hana, en ég held að það hafi allir fattað hana. Höfundur gæti náttúrulega hafa verið í einhverjum svaka djók fíling og meint hvort að fólk, annað fólk en sá látni, lifi af eftir að hann/hún deyr. Eða hvort það sé líf, eftir dauðann, sem “getur ekki gengið” þar...

Re: Mikilvægi nákvæms orðalags

í Heimspeki fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Hold þitt deyr og blóð þitt hættir að streyma. Það er kallað dauði, eða andlát (sem er reyndar frekar lélegt orð verð ég að segja). Þrátt fyrir það geturu alveg verið í fullu fjöri. Jafnvel meira fjöri en áður. Bætt við 3. apríl 2007 - 22:15 En þú veist nei nei, orðalag skiptir litlu, þetta er heimspeki, ekki orðaleikur.

Re: Dark Side könnunin...

í Gullöldin fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Þú segir að Time sé lang lang lang besta lagið á plötunni, en Breathe megi bara eta það sem úti frýs? Hlustaðu nú á Breathe fyrir mig og síðan á seinasta versið í Time :) (fara aftur í tímann :O)

Re: Dark Side könnunin...

í Gullöldin fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Þau eru ekki nákvæmlega jafngóð, en þau er föst saman. Þetta er bara eitt stórt og gott lag. Í endann á Time kemur til dæmis Breathe aftur. Hvernig getur Time þá verið betra en Breathe?

Re: Dark Side könnunin...

í Gullöldin fyrir 19 árum, 2 mánuðum
JÁ! Það sem hann segir eru orð að sönnu, það eru engin lög sem standa uppúr á by far bestu concept plötu allra tíma. Annað gildir með framleiddar poppplötur, þar getur alveg verið eitt og eitt gott lag.

Re: Playlistinn minn

í Músík almennt fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Hver ert þú að ákveða hvað fólk kýs að kalla tónlist?

Re: Vista spurning

í Windows fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Sem er mjög gott :)

Re: Video afspilunarvandi

í Windows fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Efast um það ef hann getur spilað streaming..
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok