Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

skuggi85
skuggi85 Notandi frá fornöld 40 ára karlmaður
3.796 stig

Re: Farice

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Af hverju þarf varatengingin að fara til Bandaríkjanna og svo aftur þaðan til Evrópu? Getum við ekki tengst netinu í gegnum Bandaríkin? Best væri náttúrulega að hafa tvo góða ljósleiðara, einn til Bna og annan til Evrópu. En það er örugglega kostnaðarsamt. Hvernig er þetta í öðrum löndum? Getur netið þar orðið hægt vegna bilana eða eru öryggisnetin betri?

Re: Eurovision 50 ára - skemmtilegt og leiðinlegt

í Söngvakeppnir fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Abba liðið heldur sig frá fjölmiðlum í dag. Ekki hægt að ætlast til þess að þau breyti lífsstílnum bara af því Eurovision er 50 ára.

Re: Rebuilding Iraq

í Deiglan fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Er ég bara hommi?

Re: Þetta er bara frekja sko! En mig langaði að myndin

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Þú lýtur út mjög svipað og ég ímyndaði að þú værir :)

Re: Saddam Hussein er Svalur Maður

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Eða heimska…. Flestir öfgar eru bara slæmir.

Re: Saddam Hussein er Svalur Maður

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Hann er Stalín aðdáandi svo maður er ekki hissa. Hann vissi að það þarf sérstakt útlit sem fólk man auðveldlega eftir til þess að verða leiðtogi. Hann er góður að fá fólk á sitt band. Ég veit ekki hversu mikill sannleikur er í þessu en ég hef heyrt að hann hafi talað suma Bandaríska öryggisverði í fangelsinu til þess að vera sammála honum og á móti innrásinni (og handtöku hans). Ég mæli með WMD myndinni (skoða link í undirskrift) en í henni er meðal annars útskýrt hvernig hann náði völdum í...

Re: Barnamyndir verðmætar...

í Fræga fólkið fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Þetta er bara endurspeglun almennings. Brúðkaups og barnamyndir hjá fræga fólkinu seljast mest. Ef slík mynd fer á forsíðuna þá selur tímaritið margfalt meira en í venjulegri viku og því borgar það sig að borga slíka upphæð fyrir myndirnar ef það er vinsælt tímarit. En málið hefur víst tekið nýja stefnu. Britney hætti víst við (eða að þetta var bara slúður frá upphafi) en þá var stolið myndum sem voru teknar fyrir einkasafn fjölskyldunar.

Re: Íran og kjarnorka...

í Deiglan fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Það sem ég er að reyna að segja er að ég er frekar viss um að það þarf meira en loftárás á stakar byggingar til þess að Rússar leggi í næstu heimsstyrjöld. Gæti kannski skeð ef Íran fer í stríð vegna loftárásanna, þá gætu Rússar mögulega blandað sér í það og aðrar þjóðir.

Re: Kvennafrídagurinn - umferð

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Og hvar átti ég að leggja til þess? Á umferðareyju?

Re: Íran og kjarnorka...

í Deiglan fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Rússar hljóta að vera gáfaðari en að ráðast á Ísrael. Það er næstum það sama og að ráðast á Bandaríkin.

Re: Íran og kjarnorka...

í Deiglan fyrir 20 árum, 4 mánuðum
En hvort ætli sé skárra þegar maður lýtur yfir heildarmyndina… Íran að skjóta kjarnorkuflaugum á Ísrael eða selja hryðjuverkamönnum slík vopn. Eða loftárás Ísraela á nokkra lykilstaði? Rússar skipta sér örugglega að því en líkurnar á heimsstyrjöld eru ekki jafn miklar.

Re: Íran og kjarnorka...

í Deiglan fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Það er ekkert pottþétt að Rússar geri eitthvað ef það verður aðeins loftárás á kjarnorkustaðsetningar, það er mikill munur á slíkur og að hernema land.

Re: Kvennafrídagurinn - umferð

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Ég sá konu á Miklubrautinni sem hefur verið u.þ.b. 35 ára. Hún var að ganga fram og til baka á gangbraut og ýta á takkana til þess að stöðva umferðina.

Re: Íran og kjarnorka...

í Deiglan fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Bandaríkin fara örugglega ekki inn í Íran. Þeir eru líklegri til þess að fara inn í Sýrland sem ber ábyrgð á meirihluta erlendra hryðjuverkamanna í Írak ásamt því að hafa verið að þvælast í Lebanon og myrt forsetann þar. En Ísraelsmenn munu örugglega gera loftárás ef þeir halda áfram með kjarnorkuáætlun sína. En að fella stjórnina og hertaka landið er held ég ekki inni í myndinni hjá neinum. Slíkt verkefni er of stórt til þess að ráða við, margfalt stærra en Írak. Þó ég trúi að heimstyrjöld...

Re: Litlausi hugi.is

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Litur á blokk er allt annað mál. Þar gildir samkomulag á milli íbúa. Það er allt annað en að yfirvöld banni vissa liti á vissum stöðum.

Re: Litlausi hugi.is

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
BANNAÐ????? Ég veit það eru mörg heimskuleg lög á Íslandi.. En í alvöru er það bannað??? Guð minn góður þetta er eins og að búa í Íran.

Re: SPILLING!!!!!

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
oki :D

Re: SPILLING!!!!!

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Það sem ég meina er að það er frekar fasismi ef stjórnvöld skipta sér af slíkum einkarekstri. Það sem gerðist í kvöld var tákn frelsis.

Re: SPILLING!!!!!

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Nei frekar andstæða við það.

Re: SPILLING!!!!!

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Málið er að hann er í persónu allt öðruvísi en þegar hann er með viðskiptagrímuna. Hann er dálítið hlédrægur og feiminn. Margir misskilja það og halda að hann sé bara kaldur.

Re: SPILLING!!!!!

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Kaldhæðmi :)))

Re: Ástæða kvennafrídagsins

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Af hverju eiga konur að fá frí þegar þær sjálfar bera mikla ábyrgð á launamuninum? Af hverju er kyn svona heilagt? Af hverju fá útlendingar, lágvaxnir, ljóshærðir og feitir ekki frídag? 15% er það lítill launamunur að ýmsar aðrar ástæður geta verið en að yfirmenn séu að mismuna fólki. Konur hafa sama rétt og karlar til þess að stunda nám og vinna sig upp á vinnumarkaðnum. En fleiri konur en karlar virðast sætta sig við að þeirra tekjur séu bara aukatekjur fyrir heimilið. Enda benda...

Re: Íran og kjarnorka...

í Deiglan fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Jább :P

Re: SPILLING!!!!!

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Já hann er dálítið að gefa skít í fólk. Talað er um misnotkun á fjölmiðlum og svo mætir hann bara í Strákana :D En Davíð Oddson verður á morgun svo það dregur kannski úr því. En já hann hefur ekki viljað koma í viðtal í langan tíma, spurning hvort að það sé búið að breytast nú þegar hann er ekki í stjórnmálum.

Re: Íran og kjarnorka...

í Deiglan fyrir 20 árum, 4 mánuðum
En þú ert til í áhættuna? Hefði þér ekki fundist óþægilegt að vita af Saddam Hussein við völd með kjarnorku? Nú eru allir að skíta á sig eftir að Kim Kong eignaðist kjarnorkuvopn og láta vestrænar þjóðir eftir hótunum hans. Jafnvel þó þeir noti ekki slík vopn þá fylgja viss völd bara að hafa þau. Svo erum við ekki bara að tala um beina árás. Íranir gætu selt hryðjuverkamönnum vopnin og svo neitað því að hafa gert það, þá myndu Ísraelar ekki geta ráðist á þá því þeir myndu fá heimsbyggðina á móti sér.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok