Samkvæmt heimildum Worldofbritney.com hafa tímaritin Ok! og People verið að berjast um að fá fyrstu barnamyndirnar frá Spears-Federline fjölskyldunni. People eiga að hafa unnið stríðið og samið um að fá fyrstu myndirnar, en þó er ekki nefnt hver lokatalan væri. Eina sem er nefnt er að lokatilboðið hjá Ok! hafi verið 2 milljón dollarar (rúmlega 120 milljón kr) og að því hafi verið hafnað. Mjög líklega er samningurinn þá um 3 milljónir dollara hjá People.

Ekki hefur verið staðfest í hvað peningarnir eigi að fara. En það er talið vera líklegt að allavega hluti þeirra fari í góðgerðarmál. Spears fjölskyldan er frá smábæ í nágrenni New Orleans og hafa verið dugleg í því að styrkja góðgerðarmál eftir að fellibylurinn Katrina fór þar yfir.