Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

skuggi85
skuggi85 Notandi frá fornöld 40 ára karlmaður
3.796 stig

Re: Kjör erlendra starfsmanna...

í Deiglan fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Getur þú sett eitthvað út á það sem ég var að segja?

Re: Kjör erlendra starfsmanna...

í Deiglan fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Nú var ég að tala um kjör almennt en ekki að það sé verið að berja fólk og svíkja samninga. Þetta tengist ekki beint þeim fréttum sem hafa verið nýlega. Ég var aldrei að tala um að láta berja starfsmenn eða að gefa þeim lægri laun en samningar segja til um. Þú last greinilega ekki það sem ég skrifaðu því þú gerir einmitt það sem ég talaði á móti. Þú færir íslenskan mælikvarða yfir á þetta fólk. Þér finnst greinilega bara fínt að þau fái bara villu með sundlaug í heimalandinu fyrir...

Re: Skattur á bensín!!!

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Í raun finnst mér ósanngjarnt hafa skiptingu á skatti. Ef það á að neyða fólk út í þetta þá er minnsta sem þeir geta gert er að taka sömu prósentu af öllum. Ekki jafn hvetjandi að hækka í launum ef skatturinn hækkar með. Einnig með því að hafa skattfrí mörk er verið að hvetja láglauna fólk til þess að hækka ekki í launum nema það sé frekar mikil hækkun til að borga upp skattinn. Svo veistu náttúrulega ekki hvernig fyrirtækið hugsar. Kannski væru blaðberalaunin lægri ef þau væru algjörlega skattfrí.

Re: Ég verð að segja að ég er sammála Mahmoud Ahmadinejad og því sem hann sagði...

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Held að það tengist frekar skynsemi. Sá sem ræðst á Ísrael mun hefja þriðju heimstyrjöldina sem líklega verður með kjarnorkuárásum og hundruðir milljóna láta lífið. Flest lýðræðisríki eru því ekki að leika sér að slíku. En ég hef meiri áhyggjur af leiðtogum hryðjuverkasamtaka eða einræðisherrum, þar sem nóg er að hafa bara einn klikkaðann mann sem er til í heimstyrjöld fyrir málstaðinn og “Guð” eða röddina í hausnum á sér.

Re: Skattur á bensín!!!

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Gott hjá þér. Ferð þá örugglega alltaf í þjónustu á meðan við hin erum í kuldan til þess að spara á sjálfsafgreiðslunni. Við höfum örugglega spáð meira út í bensínsskattinn en þú :)

Re: Hræsni BNA manna

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Nú var ég að bera saman lágmark við lágmark eins og ég tók fram. En já viltu hámarkið frekar? Ok endilega… 1,3 milljónir á 23 árum á móti 100.000 á 2 árum (ef ég man rétt þá kom þessi illa reiknaða tala þegar um 2 ár voru liðin frá innrásinni). 56.500 á móti 50.000 :) Og eins og ég sagði áður þá bera bandamenn ábyrgð á minnihlutanum ef við eigum að fara nánar út í þetta. Svo tel ég dauðsföll í lýðræðisbaráttu alltaf vera skárri en dauðsföll vegna fjöldamorða sem þjóna engum tilgangi.

Re: Skattur á bensín!!!

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Er það 2 þús kall í skatt?

Re: Skattur á bensín!!!

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Í framtíðinni þegar þú lýtur til baka þá áttu eftir að skammast þín fyrir að hafa sagt þetta. Ekki nema þú sért ríkur og þetta skipti þig litlu máli. En já fyrir flesta þá hefur bensínverð áhrif á budduna, meðal annars hvort maður á pening á kortinu í enda mánaðarins. Það er ekkert nema hræðilegt fyrir einstaklinga og efnahag landsins að það sé svona öfgaskattur ofan á nú þegar dýrt bensín vegna ástand á heimsmarkaði og sérstöðu Íslands.

Re: Grænmetisæta í vanda...

í Heilsa fyrir 20 árum, 4 mánuðum
En þetta er rétt hjá þér. Þó ég sé samkynhneigður þá viðurkenni ég að typpið var hannað til þess að fara inn í leggöngin og fjölga mannkyninu. Ekki til þess að fara í endaþarm eða munn.

Re: Hræsni BNA manna

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Ef við tökum lágmarkin frá báðum hliðum og berum saman… 25.000 á 2 1/2 ári á móti 300.000 á 23 árum. 10.000 á móti 13.000 árlega. Einnig þá bera bandamenn ábyrgð á minnihluta dauðsfalla í landinu á meðan Súnní múslimar og erlendir hryðjuverkamenn bera ábyrgð á meirihluta. Ef við ætlum að bera saman eingöngu dauðsföll á vegum bandamanna saman við dauðsföll vegna einræðisherrans þá er margfaldur munur. Dauðsföllin í dag eru náttúrulega ekkert annað en slóðin á eftir einræðinu. Flestir Súnní...

Re: Hræsni BNA manna

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Flestir fanganna eru frá átakasvæðum í Afghanistan þar sem miðpunktur Al-qaeda var. Bandaríkin fóru í réttlætanlega innrás þar og eðlilega eru aðrar leikreglur í stríðum borið saman við réttindi borgara gagnvart eigin stjórnvöldum.

Re: Skattur á bensín!!!

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Það þarf náttúrulega háa skatta til að sinna gæluverkefnum eins og að byggja tónlistarhús og styrkja vissa iðnaði frá samkeppni. Held að það sé örugglega minnihluti af sköttunum okkar sem fer í algjörlega nauðsynleg fyrirbæri. Það eru svo mörg ónauðsynlegar framkvæmdir, stofnanir og verkefni að ríkiskerfið er orðið rosalega þungt og þarf mikið af sköttum.

Re: Hræsni BNA manna

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Þetta er allt mjög leynilegt. Um leið og þeir segjast ver að fá gagnlegar upplýsingar þá er beðið um útskýringu. Þar að segja hverjar upplýsingarnar voru og hvað þeir græða á þeim. En þeir græða mest auðvitað með því að halda þessu öllu leyndu. Leyniþjónustan er leynileg af góðri ástæðu.

Re: Skattur á bensín!!!

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Áfram heldur þú að hafa þetta persónulegt í stað þess að fjalla um málið sjálft. Ríkið gæti lækkað bílatengda skatta um helming og samt haft meira en nóg til þess að reka samgöngukerfið. Eru í miklum gróða og virðast vera ánægðir með það. Hægt að gera margt skemmtilegt og ónauðsynlegt fyrir gróðann, t.d. byggja tónlistarhús og opna fleiri sendiráð.

Re: Hræsni BNA manna

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
1. Bandaríkjamenn eru en þá í Afghanistan. 2. Þeir fóru upprunalega fyrst í Írak á undan Afghanistan. Ef eitthvað þá hefðu þeir frekar átt að klára Írak á undan Afghanistan. En auðvitað 11.september breytti því. Kúgun og fjöldamorð Saddams voru gífurleg. Eins og með flesta einræðisherra þá tekur mörg ár eftir á að allt komi í ljós. 1,3 milljónir Íraka hafa “horfið” á valdartíma Saddams, talið er að stór meirihluti hafi látið lífið og að um helmingur þeirra séu í fjöldagröfum. Þetta er um 5%...

Re: Skattur á bensín!!!

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Eða bara koma með alvörur samgöngur svo færri kjósa einkabílinn. Hætta að byggja út í bláinn og byrja að byggja upp, gera Reykjavík að borg.

Re: Skattur á bensín!!!

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Já hann hefur alltaf farið mjög í mig. :/

Re: Hræsni BNA manna

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Ég veit það ekki. Nú áður var ég bara að tala um mína persónulega tilfinningu í þessu máli. Flestir fanganna voru teknir á hryðjuverkasvæðum og því tel ég persónulega líklegt að þeir séu ekki blásaklausir þó það getur vel verið að meirihluti þeirra hafi ekki tekið beinan þátt. En ég ætla ekki að fullyrða neitt ólíkt þeim sem fullyrða að meirihluti þeirra séu blásaklausir.

Re: Hræsni BNA manna

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Nei enda ekki en þá orðnir næsta heimsveldið. En já það er ekkert öruggt að þeir hermi eftir Evrópubúum og Bandaríkjamönnum (já Evrópubúar hafa líka verið duglegir í að leika alheimslöggu). En þó frekar líklegt. Ég óttast mjög að Kína verði næsta heimsveldið áður en lýðræði nær tökum þar, vil varla ímynda mér hvernig fer fyrir heimsbyggðinni þá. Við eigum örugglega eftir að sakna styrk kanans þá. Í dag eru Evrópumenn kannski ekki jafn stríðsglaðir og áður fyrr en heimsálfan okkar virðist...

Re: Hræsni BNA manna

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Og hvernig á maður að geta treyst á þessa nðurstöðu þegar lítið sem ekkert aðgengi er að þessum fangelsum? Svo er mjög misjafnt hvernig er flokkað “saklaus maður”. Margir vilja t.d. flokka þann sem starfaði sem kokkur eða bílstjóri hjá hryðjuverkasamtökum sem “saklaus maður” sem veit ekkert. Í stríðsástandi er ekki hægt að gera mikið annað en að handtaka alla þá sem eru á svæðum hryðjuverkamanna. Að fara að rétta yfir hverjum einasta manni sem var á staðnum er allt of flókið í miðju stríði....

Re: Skattur á bensín!!!

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Var ekkert rosalega frumlegt.

Re: Skattur á bensín!!!

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Hvað er svona fyndið?

Re: Skattur á bensín!!!

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Ég hef alveg efni á bensíni enda með tæpa milljón í bankanum. Þetta er nú lélegt hjá þér að fara í persónulega árás í stað þess að fjalla um málefnið sjálft. Þér finnst kannski bara fínt mál að ríkið taki 2/3 af bensínskattinum í gróða en ég get ekki verið sammála því óháð mínum persónulegu fjármálum.

Re: Skattur á bensín!!!

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Finnst þetta varla vera nóg í grein. Svo ef maður setur þetta í kork á stjórnmál þá fær maður svona 1-2 svör í heildina

Re: Hræsni BNA manna

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Held að það sé frekar auðvelt fyrir almenna borgara að afskrifa pyntingar enda hafa þeir mjög takmarkaða sýn á stríðum og átökum. Pyntingar á einum manni getur komið í veg fyrir árás og bjargað fjölda mannslífa. Ýmis lönd stunda pyntingar bak við tjöldin og alveg örugglega sum Evrópulönd líka. Þó að Bush sé kannski ekki algjörlega á móti pyntingum þá vill hann að slíkt sé aðeins gert í formi undantekninga. Þar sem hagsmunirnir eru mjög miklir. Ekki að sjónvarpsþættir séu heilagur sannleikur...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok