Mig langar að vara fólk við því að kettir, önnur dýr eða jafnvel börn séu að éta blóm sem eru á heimilinu. Ég missti köttinn minn í maí á þessu ári eftir að hafa étið afskorin blóm. Mig langar að birta hér það sem ég skrifaði hjá mér á þessum tíma. 17. maí 2003 Cesar var mjög hrifinn af blómvendi sem ég hafði á gólfinu hjá mér og hann byrjaði að gæða sér á honum á sunnudaginn síðasta. Daginn eftir var hann óvenju rólegur og hafði hægt um sig, á öðrum degi hætti hann að borða og varð enn...