Já en, (við seinni spurningunni) þá tekur það hljóðið 1,5 sekúndur að fara niður og koma upp, svo bara það að fara niður (bara helminginn) tekur þá 0,75 sek..sem er þá dýpt sjávarins… svo 1500 m/sek * 0,75 sek er 1125 metrar… …Eða hvað?
Mér fannst það erfitt…enda er ég skítléleg í samfélagsfræði:/ En það er í góðu…Kennarinn minn sagði að minnsta mögulega einkunn sem ég gæti fengið væri 7.5, eftir að hann fór yfir…svo ég er einkar ánægð:)
Engin sérstök röð Hallelujah - Jeff Buckley All my love - Led Zeppelin Tears in heaven - Eric Clapton Wonderful tonight - Eric Clapton Trouble - Coldplay Angie - Rolling stones Under the bridge - Red hot chili peppers Last kiss - Pearl jam Dolphin's cry - Live The slaughter - John Frusciante And then on and on…
Ég var í körfubolta áðan, einhver rak öxlina í hökuna á mér og ég beit stykki úr tungunni á mér…Það er mjöööög vont, ég get ekki borðað:/ Sárið er svona svona <—> stórt:O
Bubbi er samt bara Bubbi, og hann “má” einhvern veginn vera með þennan derring þótt það sé ótrúlega dónalegt og leiðinlegt fyrir greyin sem lenda í því:/ En Einar Bárason er ömurlegasti maður sem ég veit um, reynir að stæla Bubba geðveikt og finnst hann vera geðveikt svalur - Ég þoli hann ekki!!! Hann minnir mig bara á svona ekta amerískar myndir þar sem að hann er í “crewinu” með svalasta gaurnum í skólanum og hlær að öllu sem hann segir - svo gefur dúddin honum augnaráð og hann steinheldur...
Ekki ég, þess vegna finnst mér þetta ekki fyndið.. Óþolandi þegar þetta fer of langt í aðrahvora áttina, karlremba eða ofsóknarfullir feministar. Vil samt taka það fram að mér finnst launamunurinn ósanngjarn.
Nei ég er alveg sammála, eins og ég sagði, ég er langt frá þvíað vera feministi. Mér finnst óþolandi hvað þetta þarf alltaf að ganga of langt hjá þeim. Svo er það svo oft þegar talað er um jafnrétti verður að kvenrétti… En eins og Mizzeh sagði, ég hef bara ekki húmor fyrir þessum pistli en það er líklegast bara ég.
Ég er langt frá því að vera feministi eða kvenskörungur, en þetta finnst mér hreint og beint vera dónalegt og alveg ótrúlega óþroskað og hálfvitalegt… Þó svo að þetta eigi að vera grín?
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..