Ég sjálfum mér til furðu horfði á Idolið í gærkvöldi, mér til ekki mikillar undrunar sá ég að Bubbi var hundleiðinlegur eins og allir hafa verið að tala um. Hann ýkir aaalltof mikið. Tökum sem dæmi;

Það kom strákur þarna og söng eitthvað sjóaralag, bubbi fór að væla um hvað hann væri ömurlegur og ætti enga framtíð og eitthvað… Sem var kjaftæði því pilturinn söng mjög ágætlega. Man ekki hvað sigga og palli sögðu en svo kom Einar, sem þarf náttla að gera allt sem bubbi gerir, og já, hann segir að sjóarar hafi aðallega sungið þegar þeim vantaði kellingar, og að hann myndi aldrei ná í kellingar með þessu áframhaldi… Eftir skítkastið sem hann átti alls ekki skilið spurðu jói/simmi hvort hann hefði eitthvað að segja við dómnefndina, og hann sagði “Bubbi viltu að ég hendi plötunum þínum?” Sem hann og allir ættu að gera ef hann hættir ekki þessum helvítis töffarastælum og leiðindaskap.

Ef eitthvað þá ætti að reka hann úr dómnefndini, hann er alls ekki hæfur þarna með þetta viðhorf, skítur yfir alla strákana og reynir við stelpurnar. Einnig þá eftir söngin þá var spilað alvöru lagið með söng stráksins, og viti menn ALVEG EINS!!!!!!

aular.