Það er bara ekki alveg rétt, því að lesblinda er bara hluti af þessu. Það er líka eitthvað til sem heitir skrifblinda, stærðfræðiblinda og meira svona. Einhverra hluta vegna hefur lesblindan fest við þetta þannig að allir þekkja það orð og nota það yfir þetta allt saman. Dyslexía nær yfir þetta allt, þú getur verið með dyslexíu án þess að vera með lesblindu. Ég held þó að flestir sem eru með dyslexíu séu með hluta af þessu öllu í einhvers konar samblandi svo engin er alveg eins.