Ji, þátturinn í dag var alveg hrikalega spennandi! Blake að fara að fæða “in the middle of no where” !!!! Ég skil bara ekki hvað hún var að pæla að fara í bústaðinn… meina, hún er rosa ÓLÉTT!!! Og rosa heimskulegt af henni að fara í bílinn! Vá, hún er með hríðir en ætlar samt að reyna að keyra til Springfield… meiri vitleysan… hún kom sér í þessi vandræði. Ég bara vona að Ross og Rick finni hana og það verði í lagi með tvíburanna!!

Og síðan þetta “scheme” með Roger… Ég trúi ekki að Dinah deyi þarna í þessum kofa eða hvað sem þetta nú er.. það hlýtur einhver að bjarga henni eða hún komist einhvern veginn út.

Og vá hvað ég þoli ekki Brigdet núna. Atriðin með henni og Hart í dag voru svo hallærisleg.. oh come on! HÚN Á AÐ VERA MEÐ DYLAN OG HART Á AÐ VERA MEÐ DINUH!!!! Ég þoldi Bridget ekki fyrst en síðan eftir að hún eignaðist Peter og var með Dylan þá var hún mjög skemmtielg, þroskaðist geðveikt mikið! En núna þoli ég hana ekki…!!