Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Einbreiðar brýr (38 álit)

í Deiglan fyrir 17 árum, 3 mánuðum
Í þessum pistli ætla ég að tala dálítið um samgöngubætur á landsbyggðinni, og sérstaklega einfaldar/tvöfaldar brýr. Þetta átti upprunalega að vera svar við greininni “Samgöngur hér á Íslandi” eftir Amazon. Svarið vatt hins vegar upp á sig og varð eiginlega alltof langt til þess að vera bara svar. Ég bý á Höfn í Hornafirði og stunda skóla í Reykjavík, svo ég fer nokkuð mikið þarna á milli. Á leiðinni þarna á milli eru 28 einbreiðar brýr, þar af 23, bara í Austur-Skaftafellssýslu. (Það eru...

Adolf Hitler (55 álit)

í Sagnfræði fyrir 17 árum, 7 mánuðum
Þetta er stutt ritgerð um Adolf Hitler sem ég vann í sögu í framhaldsskóla. Ég vona að það sé eitthvað gagn af henni. Adolf Hitler fæddist í Braunau í Austurríki þann 20. apríl 1889 og hefði því síðast orðið 117 ára hefði honum unnist aldur til. Æska hans var erfið og faðir hans lést þegar hann var ungur að árum. Hann fluttist til Vínarborgar og sótti um að fá að vera í listaskóla, en honum var fljótlega kastað út. Skólinn sá var starfræktur af gyðingum sem ýtti eflaust ennþá meira undir...

Zimbabwe (8 álit)

í Sagnfræði fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Hér á eftir kemur grein sem ég vann í Landafræði 303 í Framhaldsskólanum í Austur-Skaftafellssýslu, með smávægilegum breytingum þó. Árið 1923 tók Bretland yfir stjórn Suður Ródesíu. Árið 1961 var svo skrifuð stjórnarskrá sem fól hvíta manninum að sjá um stjórnartaumanna. Árið 1965 lýsti stjórn landsins einhliða yfir sjálfstæði. Bretar voru lítt hrifnir af þessum ráðahag stjórnvalda og viðurkenndu ekki sjálfstæði landsins á þeim grundvelli að þeir vildu auka kosningaréttindi þeldökks...

Vinstri hreyfingin-grænt framboð. (12 álit)

í Stjórnmál fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Það er staðfest. Það sem menn hafa verið að velta fyrir sér frá örófi alda er loksins komið á hreint. Fyrir þá sem ekki vita um hvað ég er að tala sjá vonandi eftir að hafa ekki horft á Silfur Egils sunnudaginn 1. maí. Nú ætla ég að útskýra hvernig í pottinn er búið. Egill Helgason hafði boðið fulltrúm fjögurra stærstu stjórnmálaflokka landsins til umræðunnar. Þeir voru: Margrét Frímannsdóttir, fulltrúi Samfylkingarinnar, Hjálmar Árnason, fulltrúi Framsóknarflokksins, Björn Bjarnason,...

Jói klári (12 álit)

í Húmor fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Jói litli er sá klárasti í bekknum, og er alltaf fyrstur að klára prófin og spurningarblöðin. Svo að hann hafi nú eitthvað að gera, eftir að hann var fyrstur búinn að svara spurningarblaði kennarans, ákvað kennarinn að spyrja hann aukaspurningar. “Jói minn, þú ert nú svo klár, að ég ætla að spyrja þig einnar aukaspurninar. Það eru 5 fuglar á grein, þú ert með byssu og skýtur einn fuglinn, hvað eru þá margir fuglar eftir?” “Enginn”, svarar Jói. “Hvað meinar þú… enginn?”, spyr kennslukonan?...

Henry Ford (7 álit)

í Sagnfræði fyrir 19 árum
Hér er stutt greinagerð sem ég gerði um Henry Ford í sögu 203. Þetta er ekki tæmandi. Henry Ford var ansi merkilegur maður. Hann fæddist inní bændafjölskyldu í Michiganfylki í Bandaríkjunum þann 30. júlí árið 1863. Hann hætti svo í skóla 15 ára að aldri til þess að fara að vinna á búgarðinum en fluttist fljótlega til Detroit og fór að vinna sem lærlingur í einhverskonar vélabúð. Eftir það var leiðin nokkuð greið og á endanum tókst honum að gera það sem hann var hvað þekktastur fyrir, að...

Ari (11 álit)

í Sagnfræði fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Hér á eftir fer ritgerð sem ég gerði í Íslensku 303. Njótið vel. Inngangur Í þessari rannsóknarritgerð er ætlunin að greina frá ævi Ara Þorgilssonar, sem yfirleitt var kallaður hinn fróði. Ég mun velta fyrir mér ýmsum málefnum varðandi hann og greina frá ýmsu sem ekki er almenn þekking í dag. Spurningin sem ég legg fram er einföld og er svohljóðandi: “Hver var Ari fróði og hver voru helstu verk hans.” Vinnuaðferð mín við þessa rannsókn var ósköp einföld, ég fann efnið og gerði heimildaskrána...

Guðbrandur Þorláksson biskup - æviágrip. (11 álit)

í Sagnfræði fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Guðbrandur Þorláksson fæddist árið 1541. Hann lagði stund á guðfræði og rökfræði við Hafnarháskóla, (Hafnarháskóli er háskólinn í Kaupmannahöfn, ekki Höfn í Hornafirði). Hann er sá Íslendingur sem lengst hefur gegnt embætti biskups, eða í 56 ár. Hann lagði mikla áherslu á að festa lútherska trú í sessi á landinu. Bækur með orðum guðs voru mjög af skornum skammti og til að bæta úr því keypti hann prentsmiðjuna sem Jón Arason hafði fengið hingað til lands og gerðist þá umsvifamikill útgefandi...

Landbúnaður (8 álit)

í Gæludýr fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Komið þið sæl Ég hef verið að endurstilla áhugamálin mín og ég hef verið að reyna að leita að einhverju sem landbúnaður getur talist. Ekkert hef ég fundið þó grandskoðun hafi vissulega átt sér stað. Þannig er mál með vexti að ég er “bóndi” (bóndasonur) og það kæmi sér vel fyrir mig og aðra í sömu stétt að hafa eitthvað til að dunda sér við í frístundum, þó það væri ekki nema á milli mjalta. Því dettur mér í hug hvort stjórnendur og áhugamálaeftirlitsmenn gætu séð aumur á okkur bændunum og...
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok