Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

siggiingi
siggiingi Notandi síðan fyrir 18 árum, 2 mánuðum 32 ára karlmaður
884 stig

Marillion (5 álit)

í Gullöldin fyrir 16 árum
Hér má sjá mynd af meðlimum Neo-Prog sveitarinnar Marillion. Hún var stofnuð árið 1979 og hefur hún gefið út fínar plötur síðan þá. Sú frægasta og jafnframt sú besta er platan “Script for a Jester's Tear”. Fín hljómsveit.

Pavlov's Dog (6 álit)

í Gullöldin fyrir 16 árum
http://youtube.com/watch?v=1vhNwZ-nWZk Erum við að tala um mögnuðustu rödd allra tíma. Mér finnst Geddy Lee söngvari Rush vera eins og Robert Plant á helíum. En David Surkamp er eins og Geddy Lee á helíum. Hvílík snilld þetta lag og þessi rödd!!

Uppáhalds Trommari (180 álit)

í Hljóðfæri fyrir 16 árum
Jæja…hvaða trommara haldið þið mest uppá. Bannað að segja Joey Jordison því að hann sökkar. Líka bannað að segja Hanni í Írafár. En mínir eru klárlega 1. Carl Palmer (ELP) 2. Bill Bruford ( Yes, King Crimson) 3. Mick Tucker ( The Sweet) 4. Gunnar Jökull (Trúbrot, Flowers) ..svo má eiginlega ekki gleyma Keith Moon.

Gaman að þessu (7 álit)

í Tilveran fyrir 16 árum
Hérna er eitt brilliant vídeó sem ég ég félagar mínir gerðum. http://youtube.com/watch?v=ARknpyTMONs Gaman að þessu maður.

Rhapsody (12 álit)

í Metall fyrir 16 árum
Jæja…Rhapsody. Ein epískasta Power metalhljómsveit heims. Skemmtileg hljómsveit sem ég hef mjög lítið að segja um,enda er ég sjálfur ekki mikill metalhaus.

Svíít maður (6 álit)

í Tilveran fyrir 16 árum
Sæl og blessuð. Ég heyrði einhverntímann um eitthvað forrit á netinu svipað skybe og voipstunt. Í þessu forriti á maður að geta hringt í tvo síma í einu. Ég hringi í a og b á sama tíma og þeir svara báðir í símann og þeir er komnir í samband. a og b- Halló! a-hver er? b-hver ert þú? a-afhverju varstu að hringja b-ég?, þú hringdir í mig Svona til þess að grínast í fólki. Fattiði??..ok kúl. Er þetta til?, veit einhver hvað þetta heitir ef svo er?

The Zombies (1 álit)

í Gullöldin fyrir 16 árum
The Zombies er klárlega ein af mínum uppáhalds sveitum. Lög á borð við She's no There, Rose for Emily og Time of the season er hreinasta afbragð. Ef þið ætlið að tékka á plötu með þeim þá er platan Odessey & Oracle málið.

Adam Ant (0 álit)

í Gullöldin fyrir 16 árum
Hér má sjá New Wave pönkarann Adam Ant þegar hann var uppá sitt besta. Mikill snillingur og er frægastur fyrir að vera í hljómsveitinni Adam and the Ants, en hann á einning einhvern sólóferil að baki. Ég hélt að Adam and the Ants væri hljómsveit sem ég myndi aldrei nokkurn tímann hlusta á, en ég sá ódýra plötu með þeim og ákvað að slá til. Þeir komu mér skemmtilega á óvart og er þetta ein af mínum uppáhalds plötum í augnablikinu, eða platan “Dirk wears white sox”. Mæli með honum þó svo að ég...

Uriah Heep (4 álit)

í Gullöldin fyrir 16 árum
Hér má sjá meistara í Uriah Heep uppá sitt besta. Skemmtilegasta Line-upið. Lee Kerslake, Mick Box, Gary Thain, Ken Hensley og David Byron. Fannst þetta svo svöl mynd af þeim að ég varð að posta henni hingað inn.

Fairport Convention (6 álit)

í Gullöldin fyrir 16 árum
Jæja…þessi hljómsveit var fyrsta rafmagnaða folk sveitin ásamt Steeleye Span held ég allveg örugglega. En já æðisgengin sveit sem hafa gefið út frábærar plötur á borð við Unhalfbricking sem er svakalegt stykki. Sandy Denny sem er uppáhalds söngkonan mín söng með þeim árin 1968 - 1969 og 1974 - 1975. Árið 1978 féll hún niður stiga og lést. En tónlistin hennar lifir!

Rush (4 álit)

í Gullöldin fyrir 16 árum, 1 mánuði
Jæja…langt síðan maður sá mynd af öllum liðsmönnum Kanadísku proggsveitarinnar Rush hér inná. En þessa sveit skipa þeir Geddy Lee sem spilar á bassa og syngur. Alex Lifeson á gítar, og á trommur er einn albesti rokktrommari allra tíma, Neil Peart. Rush eru eflaust þekktastir fyrir plötuna 2112 sem er meistarastykki!

Alan Parsons (9 álit)

í Gullöldin fyrir 16 árum, 1 mánuði
Jæja..hér er meistarinn Alan Parsons. Frábær lagahöfundur og hefur hann samið frábær lög á borð við “Old and Wise” og “Turn Of A friendly Card”. Hann er einnig frægur fyrir að hafa pródúserað Dark side of the moon og abbey road.

Músiktilraunir Dómar (10 álit)

í Hljóðfæri fyrir 16 árum, 1 mánuði
Jæja jæja…heyrðu. Er ekki gaman að á meðan músíktilraunum stendur að fá umsagnir og dóma hingað inn frá þeim sem voru áhorfendur á ákveðnu kvöldi. Bara skrifa stutt hvaða bönd voru best á kvöldinu sem þið fóruð á. Bara einn kork. Ég skrifa örugglega um mánudaginn og miðvikudaginn. Líka hugsað fyrir hljómsveitirnar að sjá hvernig fólk er að fíla þær og hvað þær mættu bæta. Eruð þið geim?…eða bara að skrifa komment á korkana.

Van der Graaf Generator (2 álit)

í Gullöldin fyrir 16 árum, 2 mánuðum
Er ekki viss um að margir séu vel kunnugir þessari sveit, en þessi magnaða sveit kom uppá yfirborðið árið 1967. Mjög spes sveit í anda King Crimson og ættu allir að tékka á þessum félögum. Magnaðir kallar.

Andrew Latimer (4 álit)

í Gullöldin fyrir 16 árum, 2 mánuðum
Hér er mynd af Andrew Latimer sem er gítarleikari og söngvari sveitarinnar Camel. Hann stofnaði þá hljómsveit árið 1971 og hefur þessi breska Progg hljómsveit verið gríðarlega vinsæl síðan.

Everybody Knows This Is Nowhere (4 álit)

í Gullöldin fyrir 16 árum, 2 mánuðum
Jæja..önnur sólóplata Neil Young, og sú fyrsta þar sem Crazy Horse spiluðu með honum. Hún kom út árið 1969 og er hún í 208 sæti yfir 500 bestu plötur allra tíma að mati tímaritsins Rolling Stone

Veiði í Tungufljóti (6 álit)

í Tilveran fyrir 16 árum, 2 mánuðum
Langaði ekki að setja þetta inná veiði sem er eitt dauðasta áhugamál huga. En þarna hefur einhver hér farið á laxasvæði í Tungufljót í Biskupstungum. Ef svo er, hvernig var, er eitthvað varið í þetta? Var einmitt að kaupa mér leyfi þarna með félaga mínum.

Könnunin (15 álit)

í Gullöldin fyrir 16 árum, 2 mánuðum
Hvernig er hægt að vera það lélegur að gleyma valmöguleikanum “nei” í könnun??? Svo heimskt…. svo heimskt.

T.Rex (10 álit)

í Gullöldin fyrir 16 árum, 2 mánuðum
Jæja…loksins kemur mynd með T.rex en ekki bara Marc Bolan. Eins og þið flest vitið lést Marc Bolan í bílslysi 1977, þá 29 ára að aldri. Bassaleikarinn Steve Currie lést árið 1981 í bílslysi í Portúgal. Bongo og Kongas trommuleikarinn Mickey Finn lést svo úr lifraveseni vegna áfengisnotkunar árið 2003. Svo eru einnig meðlimir T.rex Steve Took og Dino Dines dánir. Allveg ótrúlegt hvað fór illa fyrir þessum meistörum. Eini frægi T.rex meðlimurinn sem er á lífi er trommarinn Bill Legend sem er...

Big Brother And The Holding Company (2 álit)

í Gullöldin fyrir 16 árum, 2 mánuðum
Jæja…frábær sveit með bestu söngkonu gullaldarinnar í fararbroddi, Janis Joplin. Var stofnuð árið 1965 í San Francisco og spilaði Psychadelic rock í líkingu við Grateful dead, Quicksilver messenger service og Jefferson Airplane.

Clive Bunker (11 álit)

í Gullöldin fyrir 16 árum, 3 mánuðum
Þessi frábæri trommari spilaði með Jethro Tull á árunum 1967 - 1971. Ég var að hlusta á fyrstu plötu Jethro, This Was, og trommuleikurinn þar er í heimsklassa. Hann hætti eftir að JT gáfu út Aqualung, en þá kom trymbillinn Barriemore Barlow í stað hans. En Clive Bunker, fannst hann verðskulda eina mynd hér. Skrýtið að “ianandersson” sendi ekki inn þessa myns

Carole King (3 álit)

í Gullöldin fyrir 16 árum, 3 mánuðum
Jæja. Er búinn að hlusta mikið á frægustu plötu hennar, Tapestry uppá síðkastið. Rosalega flott folk/rock/pop plata. Þess má til gamans geta að hún er gift meistara James Taylor. Hafiði hlustað eitthvað á Carole?

Er rokkið dautt? (0 álit)

í Gullöldin fyrir 16 árum, 3 mánuðum

Gigli (7 álit)

í Tilveran fyrir 16 árum, 3 mánuðum
http://www.imdb.com/title/tt0299930/awards Hehehehe….ég hef nú aldrei séð annað eins. Ég hafði heyrt um að þessi mynd væri léleg, en ekki svona léleg!

Myndir (4 álit)

í Gullöldin fyrir 16 árum, 3 mánuðum
Komasvo…væri ekki skemmtilegra að vera aðeins duglegri að senda myndir inná þetta áhugamál. Það væri æðisgengið að sjá eina á dag…allir að taka sig á…til í það?
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok