Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Útlendingar

í Tilveran fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Var hann ekki þýskur?

Re: Of stór skammtur?

í Tilveran fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Geðlækni nota bene.

Re: Of stór skammtur?

í Tilveran fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Talaðu við lækni.

Re: Bestu illmennin

í Kvikmyndir fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Mér fannst Ralph Finnes túlka Amon Göthe stórfenglega í Schindler's List. Ralph var lengi fyrir mér eftir myndina sem brjálæðingurinn.

Re: textar Megasar

í Tilveran fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Ragnheiður biskupsdóttir brókar var með sótt og beiddi þegar Daði mælti á latínu. Hann kenndi henni sitthvað til gamans og til gagns og gjörðist snemma þaulkunnugur gatinu. Í skammdeginu vildi henda að villtust bestu menn og var oft fyrir kvenlíkami í rúminu. En milli draums og veru þeir vissu óglögg skil og voru síst að pæla í því í húminu. Og Ragnheiður hún fæddi einn dag hann Daðason, menn dylgjuðu menn báru hana út, menn hæddu hana. En hlýðið góðir drengir það er hlálegt en þó satt, það...

Re: Grillað minni Corsair 512 MB

í Vélbúnaður fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Það geta alltaf komið upp vandamál varðandi vélbúnað. Starfsmenn Tölvulistans tóku á þessu máli með stakri prýði og fékk ég mitt tjón bætt og kann ég þeim góðar þakkir. Ég held að margar hrakfallasögur sem birtast hér á huga séu oft stórlega ýktar eða þá að viðkomandi dregur úr sinni sök, hafi hún verið einhver fyrir.

Re: menningarnótt?

í Tilveran fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Ætli það velti ekki á sjónarhorninu.

Re: menningarnótt?

í Tilveran fyrir 19 árum, 10 mánuðum
En hvort er nú mikilvægara, landsliðsúrtak eða menningarnótt?

Re: WoW down?...

í Blizzard leikir fyrir 19 árum, 10 mánuðum
http://www.worldofwar.net/ Samkvæmt þessari síðu virðast þeir í Bandaríkjunum líka vera í veseni með leikinn. Evrópa er bara í lamasessi og búin að vera í örðuleikum í allan dag. Man að það tók aðeins lengri tíma að tengjast leiknum fyrr í dag en vanalega. Hvor þetta reddist á næsta klukkutíma eða verði vandamál í dag eða lengur………. verður bara að koma í ljós.

Re: Grillað minni Corsair 512 MB

í Vélbúnaður fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Notkun orðsins “að troða” hjá mér var nú bara til að skreyta korkinn, auðvitað setti ég þetta bara í á þann eina máta sem hægt er. Á réttan máta. Þakka annars ráðleggingar, vandamálið er leyst. Grillaða minnið var tekið upp í 2x512 minni. Farsæll endir á annars leiðinlegu máli.

Re: WoW down?...

í Blizzard leikir fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Heimasíða WoW í Evrópu er líka í köku svo það er ekki á vísan að róa í þessu máli. Endemis lúðar sem hýsa leikinn… Mér er spurn, þið sem spilið WoW á bandarískum serverum, eru líka endalaus vandræði með þjónana hjá ykkur?? Það væri gaman að bera þetta saman.

Re: Grillað Corsair 512MB minni

í Hugi fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Ég þakka ráðleggingarnar. Þannig er nú að þetta ágæti K7 MSI móðurborð er með þremur raufum og ég var með 2x 256 dual í gangi. Þar sem raufin virtist ónýt var ekkert annað að gera en að skipta þeim gömlu út fyrir ný. Fékk ég hið grillaða minni upp í ný 2x512 dual á sanngjörnu verði. Lýsi ég hér með ánægju minni hvernig starfsmenn Tölvulistanns tóku á þessu leiðindamáli. Ég hef orðið var við að margir hreyta miklum ónotum í Tölvulistann og starfsólkið þar en það er greinilega misjafnt hvaða...

Re: Grillað Corsair 512MB minni

í Hugi fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Hraðar vinnslu í tölvunni. Forrit keyra sig fyrr upp o.s.frv. Tölvan verður hraðvirkari.

Re: Grillað Corsair 512MB minni

í Hugi fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Ertu einhvert tölvuséní sem þekkir “rétta” orðið yfir Memory Module og ert með útúrsnúninga og þykist fyndinn eða hefuru bara ekki hugmynd um hvað ég á við? Hafir þú ekkert til málana að leggja bið ég þig að svara þessum korki ekki frekar.

Re: Grillað Corsair 512MB minni

í Hugi fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Þakka ráðið en ég kemst í sprenglærðan tölvuviðgerðarmann án mikils kostnaðar. Tölvan er í lagi……….. er að brúka hana einmitt núna. Þannig allt slapp. Nema minnið nýja og blessuð raufin sem virðist bráðin.

Re: Grillað Corsair 512MB minni

í Hugi fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Það hef ég ekki hugmynd um. Veit ekki hvað ég get sagt meira en nafn framleiðanda, stærð minnis, mhz sem eru. Fleirra er ekki í stöðuni. Held ég… http://www.corsairmemory.com/corsair/valueselect.html

Re: MSN 9.0

í Tilveran fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Eflaust einhver vírus eða ámóta viðbjóður.

Re: Umferðarátak á Íslandi TAKK FYRIR!

í Deiglan fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Það þarf ekki endilega að segja ný lög eða rita reglugerð um þetta efni. í þriðja málslið 36. gr. umferðarlaga 50/1987 segir: Ökumaður má eigi að óþörfu aka svo hægt eða hemla svo snögglega að tefji eðlilegan akstur annarra eða skapi hættuÞarna er þetta alveg skýrt, en hvort það sé tekið á þessum brotum er annað mál enda það matsatriði hverju sinni hvenær einhver ekur það hægt að hann sé stórhættulegur umhverfi sínu og skapi hættu í umferðinni. Það mætti kannski skerpa á þessari grein og...

Re: Umferðarátak á Íslandi TAKK FYRIR!

í Deiglan fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Já það væri eflaust ekki svo galið að setja fólk í reglulegt tékk. Kostar að vísu miklar fjárhæðir en ef það bjargar mannslífum eða bjargar því frá að verða örkumla… þá það. Ég myndi ekki segja að löggan “eyði” tíma og peningum heldur ver hún frekar þessum tíma til að berjast gegn þessum helvítis aumingjum sem dirfast að aka undir áhrifum. Þá mættum við plebbarnir líka taka okkur á og líta ekki í hina áttina þegar við vitum til þess að einhver ætlar sér að setjast undir stýri efir “bara tvo...

Re: Umferðarátak á Íslandi TAKK FYRIR!

í Deiglan fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Auðvitað eiga gamalmenni og aðrir sem eru það heyrna og/eða sjónskertir ekki að aka bíl. Enda er það skýrt í lögum. Þó eru mýmörg hrukkudýrin sem aka bíl, gjörsamlega ófær um það. En þannig er það bara. Rétt eins og margir sem aka undir áhrifum áfengis eða annara efna, sviptir ökuréttinum á fullri siglingu. Fólk er bara svo helvíti hrokafullt í umferðinni. “Hvað er verið að stoppa mig” viðhorf. “Ég er nú svo klár” blablabla kjaftæði.

Re: Umferðarátak á Íslandi TAKK FYRIR!

í Deiglan fyrir 19 árum, 10 mánuðum
defensive-driving Merkilegt orðalag. Hvað um það. Þú glöggvar þig vonandi á því að þessi tala “90” merkir hámarkshraði við bestu aðstæður. Ekki í beljandi rigningu eða hífandi roki. Það er ekkert í lögum sem krefst þess að þú akir á 90 af því það bara stendur á skiltinu. En það veist þú vitaskuld. Sannarlega stendur orðrétt í umferðarlögum: Ökumaður má eigi að óþörfu aka svo hægt eða hemla svo snögglega að tefji eðlilegan akstur annarra eða skapi hættu Þessi einstaklingur sem lullar þetta á...

Re: Ýmislegur bjánaskapur í nýjustu ályktun SUSara

í Deiglan fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Heyr heyr! Þessir oflesnu vindbelgir ættu að beita sér fyrir einhverju mikilvægara í þjóðfélaginu en að röfla um RÚV. Þvílík og önnur eins tímasóun. RÚV drepur engann, það er nokkuð ljóst en lagir biðlistar á sjúkrahúsum þessa lands gera það aftur á móti. Ég held að þessir ungu “hugsjónamenn” ættu frekar að beina spjótum sínum að því ömurlega batterýi sem Landspítali Háskólasjúkrahús er. Já og elliheimilin. Nefni þetta tvennt sem dæmi. Tek það fram að ég er enginn afturhaldskommatittur, ef...

Re: Umferðarátak á Íslandi TAKK FYRIR!

í Deiglan fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Merkilegt að þú predikir lagasetningar um lágmarkshraða þegar þú ert jafnan fljótur til að verja ýmiss lögbrot og er mikill postuli fyrir frelsi einstaklingsins. Sífellt blaðrandi um fasimsma og að ríkið níðist á litla manninum. En það er önnur saga. Það vill nú svo til að í 36.grein laga nr. 50/1987 er skýrt kveðið á um að ökumenn skuli alltaf haga akstri eftir getu, umhverfi og öðru því er kann að hafa áhrif á stjórnun ökutækisins. Svo kjósi einhver að aka í Ártúnsbrekkunni á 60 er...

Re: Bubbi?

í Hugi fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Jú það stemmir, Kveðja…. Orðin “sól að morgni” koma bara svo ansi oft fyrir í laginu.

Re: Bubbi?

í Hugi fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Þú átt þó ekki við Sól að morgni? þar er reyndar orgel að verki en ófróðir gætu ruglað því saman við nefnd blásturshljóðfæri. Ég er nú ansi vel að mér um tónlist Bubba en mér dettur ekkert annað í hug en Sól að morgni.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok