Mér datt í hug að setja inn hérna vatnsdeigsbollu uppskrift sem ég baka alltaf á bolludaginn og hefur aldrei klikkað :) Efni: 2,5 dl vatn 50 g smjörlíki örlítið salt 175 gr hveiti 4-6 egg 2 tsk. lyftiduft. Vatn, smjörlíki og salt soðið saman í potti. Potturinn tekinn af hellunni þegar sýður og hveitinu hrært út í. Sett á helluna aftur og hrært vel í ca. mínútu. Þá er deigið sett í skál og látið kólna. Svo eru eggin hrærð saman við eitt og eitt í einu, þar til deigið er orðið hæfilega þykkt....