Já, ég verð að segja að bólan sé orðin frekar stór og stinn. Hún er við það að springa en þó einhvern veginn ekki. Það sem ég á við er að það mun alltaf vera fólk sem sækir í þetta en bara djammsins vegna. Ég hef mætt á eiginlega öll þessi kvöld og alltaf sér maður fólk sem mætir til að leiðast eða of ungar gelgjur að kjafta útí eitt. Senan lifir vegna þessa liðs, því miður, en ekki út af okkur og þeim sem hafa virkan áhuga á danstónlist. Nöfnin sem við fáum eru of stór fyrir minni staði og...