Party Zone og Jón Jónsson í samvinnu við Egils Lite kynna með stolti:

Árslistakvöld Party Zone 2007. Á Nasa Laugardagskvöldið 19.janúar.

Marc Romboy (Ge)
Tomas Andersson (Se)
DJ Casanova (Hafnafjörður)
DJ Lazer (Hvolsvöllur)
Super Diskant (Se)



Stærsti viðburður Dansþáttarins Partý Zone á hverju ári er
árslistakvöldið mikla, þriðju viku janúarmánaðar og nú í þrettánda skiptið!

Í fyrra leituðum við til Berlínar, þegar við fengum Booka Shade til að
trylla landan. Þýskaland er ennþá mál málanna og nú er það
líklega virtasti raftónlistarsnillingur Þýskalands, Marc Romboy, sem verður aðalnúmer kvöldsins.
Hann hefur meðal annars verið samverkamaður Stephan Bodzin og Gui Borratto
undanfarin misseri og hafa þeir skapað sinn dínamíska minimal
hljóðheim sem kemur öllum alltaf í stuð! Fyrirliði Svía Tomas
Andersson
kemur fram live og heldur á lofti prinsippi
þáttarins í seinni tíð um að vera með lifandi tónlist á boðstólnum.
Með honum í för eru partýsnúðar sem eru heitir í heimalandi sínu undir
nafninu SuperDiskant. Saman (í fyrsta sinn) munu Dj Casanova og Sexy Lazer halda uppi
heiðri Íslands af stakri snilld.



Tilefnið er sem fyrr sjálfur árslisti Party Zone sem verður á dagskrá
Rásar 2
þetta sama kvöld frá 19:30 til miðnættis. Þar verða kynnt 50 bestu lög ársins
2007 sem valin eru af ríflega 30 plötusnúðum, frumkvöðlum í íslenskri
danssenu og hlustendum þáttarins.
Þetta er 18. árslisti Party Zone og í lok þáttarins kemur í ljós
hvert er lag ársins?


> Forsala hafin á www.midi.is og í verslunum Skífunnar. Verð í forsölu er 1900 kr.

Marc Romboy á http://www.marcromboy.com
Marc Romboy á MySpace: http://www.myspace.com/marcromboy
Marc Romboy biography;
http://discogs.com/artist+Romboy Tomas Andersson á MySpace: http://www.myspace.com/sventomas
Jón Jónsson á MySpace: http://www.myspace.com/alltafistudi
Party Zone á http://www.pz.is
Party Zone á Myspace: http://www.myspace.com/mypartyzone