Það er ágætt að nota þessa reynslu sem víti til varnaðar. Hafið það í huga að í kerfinu er það svoleiðis að það sem er ekki skrifað var ekki sagt. Ég var svo heppin að ég lét þinglýsa leyfi til hundahalds. Sem þýðir að það það er komin kvöð á húsið sem enginn getur aflétt nema þú, sem kom sér vel því eigandinn að hinni íbúðinni seldi og sá sem keypti var atvinnu leiðindapúki og ætlaði að láta mig losa mig við hundinn, en það var nóg að veifa plagginu og hann gat ekkert gert.