The Who, sem eru afar pönksins Ekki svo galið, alla vega á pönkið þeim mikið að þakka. Hávaði, kröftug spilamennska og villt sviðsframkoma, sérstaklega hljóðfæraeyðinleggingarnar, þeir áttu það líka til að hrækja hver á annan á sviði. Metnaður Townshends í tónlistinni jókst hins vegar og þá komu meistaraverk eins og Tommy, Who's Next og Quadrophenia, mun útpældari og flóknari tónlist án þess að slá af í kraftinum og rokkinu. Pete Townshend hafði hins vegar upphaflega ætlað að leysa bandið...