Þáturinn var eitthvað á þessa leið: Glottandi krakkrassgatssólin skríkir Enter Tinky-Winky og Pó (guð, ég veit meira að segja hvað þau heita, ARG!) Þau standa svo þarna þögul eins og þvörur Þá mælir Tinky-Winky af munni fram: Tinky-winky Og hverju haldið þið að Pó svari, íbyggin á svip?: Pó Rör kemur upp úr jöðrinni og gefur frá sér óþolandi útvarpstruflanasurg. Rör: (í geðveikt sló-mó án nokkurs undirspils) Hööööööfuð …… herðar…. KNÉ..og.. tær … KNÉ -Og TÆR Ég hugsa með sjálfum mér: Hversu...