Þessi efni, td. fenalalanín, aspartiksýra og methanól eins og þú nefndir eru jú í öðrum matvælum, td. í tómatsafa. En það hefur verið sínt fram á að methanólið í aspartame umbreytist í formalín sem safnast fyrir í vefjum líkamans. Ástæðan fyrir því að þetta gerist ekki þegar þú drekkur tómatsafa er að í honum er ethanól og önnur efni sem hlutleysir methanólið. En methanól er hættulaust ef það er drukkið með ethanóli, en eitt og sér er það eitrað.