Sama hér, finnst betra að borða sallatið alveg sér, finna þetta ferska bragð :) En ég borða samt kjötið og kartöflurnar saman, þótt ég stingi einu upp í mig í einu, ólíkt hjá mörgum sem reyna að hrúga sem flestu á gaffalinn sinn og stinga sem mestum gerðum af mat upp í sig í einu. Auk þess skil ég alveg að fólk vilji blanda td. eggjahvítuna í skyrið upp á bragðið því að eintóm eggjahvíta er ekki góð. En banani, bláber, vínber og allt það er best eitt og sér.