Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

rasthorn
rasthorn Notandi frá fornöld 66 stig

XXX Rottweiler hundar og Jagúar á NASA (0 álit)

í Músík almennt fyrir 22 árum, 2 mánuðum
3ja ára afmæli TALS. Þetta voru vonbrigði og ekkert annað. Kofinn (Nasa) var tómur! Þeir reyndu og ég borgaði 900 kall inn og fór sorgmæddur heim yfir að hafa eytt kvöldinu í þetta hrikalega skólaball fyrir tíu ára! Feitar kellingar sýndu skvabið en Börkur gítarleikari Jagúar fær að vísu prik fyrir að sýna netta tilburði á sviðinu! Rasthorn.

Mér líður nákvæmlega svona!!! (4 álit)

í Dulspeki fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Þú leitast eflaust við að breyta núverandi aðstæðum til batnaðar. Oft á tíðum virðist þú hafa það á tilfinningunni að þú sért læst/ur inni án þess að vera fær um að njóta stundarinnar. Þér er ráðlagt að skoða öll þau smáatriði sem kunna að verða á vegi þínum með opnum huga. Þolinmæði er svarið við spurningu þinni og aðstæður eru vissulega ekki eins slæmar og þær birtast þér um þessar mundir. Tækifæri kann að verða á vegi þínum ef þú neitar að leyfa hindrunum að eyða fasthygli þinni....

Tarotspil á netinu (1 álit)

í Dulspeki fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Tarotspilin hafa hvert sína merkingu. Fólki er ráðlagt að einbeita sér að því sem það vill varpa ljósi á, hvort sem það eru samskipti eða aðstæður á www.spamadur.is. Viðkomandi velur svo spil úr bunkanum. Það er aldrei að vita nema að það verði fólki að gagni. Vefsvæðið fær prik fyrir að taka af skarið að mínu mati þó ég lifi ekki eftir þessu. - Rasthorn.
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok