Þú leitast eflaust við að breyta núverandi aðstæðum til batnaðar. Oft á tíðum virðist þú hafa það á tilfinningunni að þú sért læst/ur inni án þess að vera fær um að njóta stundarinnar. Þér er ráðlagt að skoða öll þau smáatriði sem kunna að verða á vegi þínum með opnum huga.

Þolinmæði er svarið við spurningu þinni og aðstæður eru vissulega ekki eins slæmar og þær birtast þér um þessar mundir.

Tækifæri kann að verða á vegi þínum ef þú neitar að leyfa hindrunum að eyða fasthygli þinni.

************************************
1.Dróg þetta spil á spámannssíðunni sem ég sagði ykkur frá. Þó ég sé ekki svartsýnn þá hefur mér liðið nett illa síðustu vikur. Hvernig á maður að opna hugann - getur einhver útskýrt þetta fyrir mér en það er erfitt að opna hugann þegar allt gengur á afturfótunum????

2.Hvað er fasthygli?????

R.