Góð plata, ég held samt mun meira upp á aðra live plötu með þessum meisturum sem er History of the Grateful Dead, Volume One (Bear's Choice). Tekin upp snemma árs 1970 en gefin út '73. Inniheldur magnaða upptöku af Black Peter. Sú plata er auðvitað allt öðruvísi en Live/Dead því á Bear's Choice eru fimm fyrstu lögin bara spiluð á kassagítar og bassa. Á seinni hliðinni slást svo trommurnar og rafmagnið með í för.