Veit ekki alveg hverju ég á að fara að svara, þú barst ekki upp neina spurningu, mér finnst ég bara þurfa að koma með smá innlegg; sko, ég er mjög mótfallinn því að Zeppelin komi aftur saman, ég hef alltaf verið það. Þeir kunna eflaust ennþá á hljóðfærin sín, þessir garpar, og ég veit fyrir víst að Plant er flottur söngvari í dag, ég sá hann á sviði 2006. Jason er samt enginn John og mér hefur vaxið óbeit á Page svona í seinni tíð, það hefur líka verið orðið á götunni að hann sé meiriháttar...