Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

raggabubu
raggabubu Notandi síðan fyrir 22 árum, 5 mánuðum 6 stig

Re: Teljið þið hund vilja vera vin minn?

í Hundar fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Auðvitað ættirðu að fá þér hund. Ég er líka í skóla og ég á hund og það gengur bara fínt. Ég hef mína ekki í búri heldur fékk mér barnahlið fyrir stofuna og hef aðrar hurðir lokaðar á meðan ég er ekki heima. Það er samt ekki ráðlegt að skilja hann eftir einan fyrst um sinn og venja hann kannski smátt og smátt á einveruna. Mín sefur á meðan ég er í skólanum og þó það séu gestir (ég á heima útá landi)þá bíður hún bara í herberginu okkar eftir mér.

Re: Mótmælum baði bræður og systur!

í Hundar fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Tíkinni minni finnst fínt að fara í bað og um daginn, öllum að óvörum, hoppaði hún uppí sturtuna þar sem maðurinn minn var að baða sig og vildi láta sprauta á sig líka, og svo reynir hún sjálf að þurrka sér með handklæðinu ef henni finnst það ekki nógu vel gert hjá mér.
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok