Hvernig mundi það leysa vandann að eyða meiri pening í að fyrirbyggja að dópi sé smygglað til landsins? Eftirspurn eftir efninu mundu aukast, samkeppni harðna, verðið mundi hækka, líklega einnig glæpatíðni, innbrot og ýmislegt í þeim dúr og það mundi kosta ríkið enn meiri pening. Vandinn fer ekki í burtu með því að auka gæslu á flugvöllum eða eitthvað álíka, það hefur sýnt sig í löndum þar sem þetta er meira vandamál en hér. Svo er meirihluti þess marijuana sem reykt er á Íslandi ræktað á...