Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Myndin (1 álit)

í Bílar fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Hvaða ofurbíll er þetta frá BMW? Ég hef aldrei séð hann áður en mér fynnst hann bara með þeim flottari ofurbílum sem ég hef séð.

Ingvar Helgason-bílasýning (1 álit)

í Bílar fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Jæja hvernig fannst ykkur bílasýningin þar? Ég fór og persónulega fannst mér hún hálfslöpp, ég hélt reyndar fyrst að þeir væru með gamla Ameríska þarna en svo var ekki, heldur voru þarna nokkrir rándýrir leðurklæddir jeppar með risavélum. Ef ég á rakka þetta meira niður þá var kókið ekki kalt eins og þeir sögðu í auglýsingunni ;)

Góð síða-Felgur (0 álit)

í Bílar fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Þetta er nokkuð góð síða þar sem þú velur tegund bílsins og getur séð hvaða felgur og dekk passa undir hann! http://1010tires.com/ Kann ekki alveg að gera link svo þið verðið bara að copera hann :D

Upplýsingar (1 álit)

í Bílar fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Er ekki til einhver viðgerðasíða á netinu? Ég spyr í mestu bjartsýni.

Könnun (0 álit)

í Bílar fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Vantar eiginlega einn möguleika! Það er misjafnt… Stundum vill maður þegar maður er rúnta vera á ssk. bíl en ef þú vilt vera að taka spyrnur og leika þér væri skemmtilegra að vera á bsk. Ég held að það séu margir sammála mér, allarvega fynnst mér fínt að vera á ssk. þegar ég er að rúnta en þegar kemur að spyrnum er lítið gaman þar sem það er einfaldlega bara pinninn í botn, bíllinn sér um restina :Þ

Kraftleysi (7 álit)

í Bílar fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Ef ég er stopp og gef allt í botn þá er hann alveg endalaust lengi upp! eiginlega jafn lengi og þegar ég gef hálfa gjöf! En þegar ég er kominn yfir 40 og hann nær snúning (ssk) þá er eins og allt virki. Það eru ný kerti svo það er ekki það. Ég var að spá að kaupa svona hreinsiefni sem maður blandar við bensínið og gá hvort þetta batni þá eitthvað, eins kannski að skipta um þræði. Veit einhver hvað getur verið að. Það er soldið mikið mál að fara að þjöppamæla kvikindið. Eins ef einhver veit...

Herbie Bjallan snýr aftur!!! (2 álit)

í Bílar fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Disney ætlar að endurgera Bjölluna Herbie. Þeir sem munu leika í endurgerðinni eru Lindsay Lohan (“Mean Girls”), Michael Keaton og Matt Dillon. Endurgerðin heitir Herbie: Fully Loaded. Myndin fjallar um Volkswagen Bjölluna, Herbie sem tekur þátt í NASCAR keppninni í Bandaríkjunum. Þetta er tekið af www.sambio.is Nú verða eflaust margir katir með þessa frétt enda bara snilldar mynd (fyrri)

Yaris (10 álit)

í Bílar fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Jæja ákvað að skrifa smá um Yaris þar sem margir hafa verið að spá í að fá sér bíl sem eyðir litlu! Útlitið á bílnum er fynnst mér þokkalegt af smábíl að vera og plássið inní honum er líka nokku gott. Hægt er að fara öll sæti fram og til baka, þannig er hægt að auka geymslurýmið í skottinu. Annað sem ég hef heyrt menn segja að þetta sé bíll sem enginn kraftur í, algjörlega máttlaus. Þetta er nátturulega bara 1000 cc vél og ekki hægt að ætlast til að þetta sé eitthvað kappaksturstæki (ef menn...

Hvernig kemur maður þessi drasli fyrir? (4 álit)

í Græjur fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Jæja ég er var að kaupa mér hátalara að framan en þeir bara passa ekki í hólfið þar sem þessir gömlu voru! Ég var að spá að fólk hlýtur að hafa lent í svona þegar þeir eru að gera upp hljómkerfið í bílunum sínum! Hvernig get ég komið þeim fyrir, ég er svo hræddur að fara að bora í innréttinguna! vill það helst ekki og vill helst ekki heldur selja þessa hátalara þar sem ég er nokku ánægður með þá….

vandamál tengt hátlörum (2 álit)

í Bílar fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Jæja nú er ég búinn að kaupa mér hátalara í kaggan sem ég er rosalega ánægður með nema það að þeir passa ekki í hólfið þar sem gömlu voru!! Er ekki eitthvað hægt að gera? ég vil helst ekki þurfa að selja þá! Ég þori varla að bora í innréttinguna til að stækka gatið…

Myndin (5 álit)

í Bílar fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Í hvaða þætti er þessi bíll? Á einhver þennan þátt? Ég á núna flest alla þættina í 3 og 4 seríu eða bara þetta sem er á bmwkrafti. Hvað var þessi bíll að fara hringinn á hjá þeim? Porsche Carrera GT á metið seinast þegar ég vissi en ekki Ferrari!!!

Til sölu NMT sími (0 álit)

í Jeppar fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Mobira Talkman NMT -bílasími, ásamt straumbreyti. Verð kr. 35þus. Uppl. i síma 663-4002 (Siggi) porsche@visir.is

Til sölu NMT sími (0 álit)

í Bílar fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Mobira Talkman NMT -bílasími, ásamt straumbreyti. Verð kr. 35þus. Uppl. i síma 663-4002 (Siggi) porsche@visir.is

16" low profile vetrardekk til sölu!!!! (2 álit)

í Bílar fyrir 19 árum, 7 mánuðum
16" low profile vetrardekk til sölu, þetta eru nagladekk og eru nánast ónotuð og lýta út eins og ný. Verðið er 25þus. kr. Uppl. 823-3175 eða porsche@visir.is eða bara hér!!

Vetrardekk (1 álit)

í Bílar fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Jæja nú er ég að spá hvar fæ ég ódýrustu dekkin? Er það ekki bara Hagkaup? Keyptum þar í fyrra og þau eru fín en er ekki einhver staður sem er að flytja þetta inn eða kannski maður geri það bara sjálfur! Mig vantar 13" vetrardekk, vill kaupa nýtt.

Hvar setur maður hitamælisskynjarann? (3 álit)

í Bílar fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Ég var að spá í ganni að kaupa mér hitamæli eins og fæst í select á 2000 kall. En hvar setur maður skynjarnann sem skynjar hitan úti? Veit að hann má ekki vera nálægt ljósi eða vélinni en hvar er hentugasti staðurinn?

vantar cd-spilara..... (0 álit)

í Bílar fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Það hlýtur einhver að luma á einhverjum cd spilara á 0-5000 kr. er til í að borga allt að 5þus ef hann er nokku nýr! porsche@visir.is

Hvernig spyrnir þú? (11 álit)

í Bílar fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Jæja nú er ég að spá hvernig fynnst ykkur best að spyrna? Það fer auðvitað eftir hvort þú sért á venjulegum bíl eða 400 hestafla bíl hvar þú sleppir og svona en ég er að tala um svona venjulegan bíl ca. (0-2000cc) Persónulega fynnst mér best að sleppa frekar hátt og spóla soldið mikið (samt ekki það mikið að hann spóli á staðnum) til að viðhalda snúningum. Mér fynnst á kraftminni bílum ef maður spóli lítið (sleppir kannski í 4þus rpm) þá dettur hann svo niður og er lengi að nú upp kraftinum...

Vantar cd spilara!!! (0 álit)

í Bílar fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Góðan daginn er ekki einhver sem á gamlan cd spilara sem hann vill losna við? Er til í að borga allt að 5þus fyrir hann. Helst langar mig í einhvern gamlan á 2þus kall sem virkar :Þ

activite windows (1 álit)

í Netið fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Jæja þá er komið að því að þetta er komið, ég kemst ekki inn! Hvernig activitar maður þetta? Sama hvaða númer ég skrifa um, hún segir að allt sé vitlaust? hvað getur maður gert til að losna við þetta?

Varahlutir í Mözdu? (4 álit)

í Bílar fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Ég er með mözdu stadion '87 og vantar varahluti. Veit einhver um partasölu sem er með hann? Ég er búinn að hryngja í held ég allar sölurnar í símaskránni og enginn á þetta til. Reyndar fann ég svo einn bíl í keflavík en Stjáni meik bílabraskari á hann svo ég gat ekki hirt úr honum :( Ég ætla að reyna að fá hann þennan mann til að láta mig fá dótið þar sem það er kominn skuld á bílinn hjá honum. Niðurstöðurnar úr símaleiknum hjá mér voru þær að það er hagstæðast að eiga Toyotu allt til í þær :P

Könnunin ofl. (4 álit)

í Bílar fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Ég hef einmitt verið að spá aðeins í þessum hraðakstri og ég held að allir bílakallar og örugglega flest allir bara hafa gaman að því að keyra hratt! Adrenalínið fer að renna og svo er það spennan og fílingurinn að horfa á hraða-og snúningsmælirinn :Þ Ég er sjálfur ekki í neinum hraðakstri (í alvöru ;) ) en þessir sem eru svo óheppnir að vera teknir, ég skil þá alveg! þessa þrá að kitla pinnan og leika sér soldið. Jú auðvitað er hraðakstur stórhættulegur og getur hvað sem er komið í veg...

go-kart smáralind (vs.) go-kart reykjanesbæ (2 álit)

í Bílar fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Jæja nú hef ég farið á báða staðina nokkrum sinnum í Reykjanesbæinn og einu sinni í Smáralindina. Svo fór ég að bera þessa 2 staði saman og niðurstaðan var að Stebbi í Reykjanesbæ verður helst að hafa alltaf 2 fyrir 1 til að halda þessu gangandi hjá sér! Eða það fynnst mér. Gaurinn sem rekur go-kart í Smáralindinni vill að menn prenti út tilboðsmiða á netinu svo hann fái borgað fyrir heimsóknir á síðuna, þannig græðir hann, nokkuð sniðugt en soldið pirrandi þegar maður er mættur á svæðið!...

Mercedes-Benz SLR McLaren (4 álit)

í Bílar fyrir 19 árum, 9 mánuðum
jæja ég held að ég hafi séð þennan grip hér á klakanum!! Hann var soldið að gefa inn meira að segja en þó ekki nóg fyrir mig :( Ég sá hann lítið en ég sá þó að hann var með sömu afturljós og SLR McLaren. Eins og stendur er þessi bíll með 5,7 L V8 vél…urr segi ég nú bara. Vá ég er að verða veikur, mig langar svo að testa svona grip, aðeins Porsche gæti læknað mig! http://www.batman.is/ut.php?id=65662

Vantar cd spilara! (0 álit)

í Bílar fyrir 19 árum, 9 mánuðum
Ef þú átt cd spilara eld gamlan á mjög lítið þá endilega láttu mig vita…hann þarf ekki að vera neitt öflugur..þarf bara að vera í lagi og ódýr :Þ porsche@visir.is
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok