Ég hef einmitt verið að spá aðeins í þessum hraðakstri og ég held að allir bílakallar og örugglega flest allir bara hafa gaman að því að keyra hratt!

Adrenalínið fer að renna og svo er það spennan og fílingurinn að horfa á hraða-og snúningsmælirinn :Þ

Ég er sjálfur ekki í neinum hraðakstri (í alvöru ;) )
en þessir sem eru svo óheppnir að vera teknir, ég skil þá alveg! þessa þrá að kitla pinnan og leika sér soldið.

Jú auðvitað er hraðakstur stórhættulegur og getur hvað sem er komið í veg fyrir að þú komist ekki heill úr ferðinni!
Steinn á veginum (bara lítill) kind!, annar bíll að taka framúr eða annar bíll líka í hraðakstri á miðri akgrein, dekk slitið eða gert fyrir mikinn hraða, ójafna í veginum, smá truflun úr útvarpinu eða félaga, bremsuvökvi búinn!, vökvastýrisvöki búinn, barn á veginum :S

Allt þetta og örugglega fl. er maður að taka áhættu á þegar maður keyrir hratt en samt keyrir fólk á limmunni!
Talandi á kvartmílubrautina þá nær maður ekki neinum hraða þar á kraftlausum bíl.

Ég er líka að skrifa þetta svo menn átti sig á þessu næst þegar þeir ætla að prufa bílinn hvort þessu spenna og fílingur og allt það sé þess virði?

Ég persónulega hef stundum smá þörf fyrir hraða en ég fer þó ekki of hratt og þá er það upp og svo bremsa ég niður strax en þetta hefur þó ekki komið oft fyrir að ég fái hraðakstursþrá, en að vera fljótur upp (spyrna) og fara hratt í beygur er annað mál :O
Göturnar hér eru víst eini staðurinn fyrir race, auðvitað passar maður þó að gera svoleiðis þar sem fólksfjöldi er enginn og öllu óhætt.

Uff enn og aftur og nýbúinn er við strand! það vantar brautina hingað á land! strax!!!!!!!!!

Mig minnir að flat6 hafi einhverntímann sagt að í Keflavík sé risaplan sem hefur verið opnað í einn dag eða svo fyrir kitla pinna kalla.

Það væri ekki vitlaust að hafa eins og við tjörnina auto-x svæði!
Hafa nokkrar keilur þarna og menn geta leikið sér á ákveðnum tímum!
auðvitað vaktað.
hvað væri að því, fullt til að stórum plönum og ekki eru keilur dýrar ;)
borgin væri örugglega til að leiga svona svæði( eitt banaslys er miklu dýrara ef leiga á einu bílstæði í fá eina tíma þegar það er ekki í notkun)

Jæja þá er ég hættur að skrifa í bili.
Ágætt að fá smá meira líf í þetta hjá okkur.

Komið með comment og nóg af þeim :Þ