Já, ég virðist vera það sjálfselskur og vanþakklátur. Ekki misskilja samt. Ég elska lífið og lifi það í botn. Ég held bara að það sé meira eftir þetta líf. Ég þekki margt heittrúað fólk og skemmtilegra og lífsglaðara fólk fyrirfinnst varla. Auðvitað töluvert mikið af svörtum sauðum líka en ég veit ekki um marga hálfvita og bjána. Ekki dæma fólk á þennan hátt. Ekki kalla hóp af fólki, sem vill engum neitt illt, ógeðslegt. Eftir allt saman er það trú þín að lífið sé of stutt til þess að eignast óvini.