Að vitna í biblíuna er ekkert öðruvísi en að vitna í góða skáldsögu, guð er einungis sögupersóna í bók. Ég hef meira að segja lesið alla biblíuna, ég gerði það meðal annars til að hafa eitthvað vit á því sem ég trúi ekki á. Ég vildi hafa meira vit á því sem ég var að andmæla, og komst að því í leiðinni að biblían er ágæt (skáld)saga. En undarlegt með þig Arnór, að þú vitnar í þetta eina skipti í Mahatma Ghandi í undirskriftinni þinni og nærð að klúðra því.