Ég bý í vesturbænum, nokkuð langt í burtu samt en maður er einnig að verða nokkuð pirraður á þessu. Ég skil vel að menn þurfa að fá útrás en þegar að menn eru að drifta og spyrna hverja einustu helgi alla helvítis nóttina þá er komið nóg. Þetta er í lagi svo lengi sem menn haga sér almennilega, taka kannski 1-2 rönn og síðan búið. Ekki að drifta og brenna gúmmí fram á morgun. Það er til fólk sem þarf að vinna fyrir bensíni sem þarf sinn svefn, það fá ekki allir vasapening.
Þessi bíll höndlar ekki þessi “kitt”. Það er eins og hann sé að sligast undan þessu plasti, sérstaklega þegar hann er á svona litlum felgum. Annars væri hann örugglega fínn ef að hann færi ekki svona mikið “over the top”.
Þetta er bíllinn minn og hann er til sölu. Shizzel setti þessa mynd inn þar sem að mér tókst ekki að senda hana inn sjálfur. Þannig að sleppið við að gefa honum álit heldur mér. kv. ouis
Í fyrsta lagi er MJÖG STÓR munur á þessum myndum, þar sem að fyrri myndin er án efa miklu fallegri. En án gríns þá eru þessir bílar báðir fjögurra dyra fjölskyldubílar með RISA STÓRUM spoiler. Mér finnst þeir hvorugir flottir, ekkert sexy frekar en múrsteinn. ATH spoiler er dregin af ensku sögninni to spoil.
mig minnir að það sé 45% tollur. (Bíll+innflutningur)*1,45*1,245=total á götuna. Síðan þarf að skrá hann eins og þú sagðir, fá á hann bráðabirgða númer, fara með hann í skoðun og borga tollskýslugjöld.
Hey ég kann á google. En það væri bara gott og sniðugt að hafa öll orðin og skammstafirnar á sama stað þannig að maður gæti slept að gúgla, enda eru þetta mjög mjög mörg orð.
ég hef keyrt dálítið þennan bíl og hann hefur mjög gott power, ég hef aldrei fundið eins mikla hröðun í bíl og hjá RX8 þegar að hann er kominn á háann snúing.
Það er mjög fínt pláss afturí miðað við aðra sportbíla, en ekki miðað við station bíla. Það er afturhurð sem að hjálpar mjög mikið að komast í aftur sætin. Þetta er mesta pláss afturí í sportbíl sem að ég hef séð. Það er ´vel hægt að koma fullorðnum karlmanni afturí vel fyrir.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..