Á miðvikudagsmorgun mætti J Rawls einsamall til landsins ..þá hafði J Sands misst af fluginu. Hann kom svo snemma föstudagsmorgun hingað og þeir fóru beint í viðtal hjá Tvíhöfða, sem var mjög fínt. Klukkan 18 tóku þeir smá syrpu í Japis, Topshop þar sem Anthony úr Souls Of Orpheus og J Sands rokkuðu feitt saman ! Um kvöldið voru svo fyrri tónleikar Lone Catalysts á Spotlight og byrjaði það klukkan 23. Nokkrir vel valdir skankarar (Total Kayoz, Magic, Intro, B Ruff, MAT) hituðu salinn upp...