Góð grein. Vantar samt mynd sem heitir Cactus Jack. Vestri sem ég held að Kirk Douglas leiki aðalhlutverkið í. Svo er Last Action Hero snilld, veit ekki af hverju hún er svona vanmetin. Arnold: Who does a doctor treat? strákur: Patients. A: And how is my elbow? S: Wearing thin? A: Bingo! S: Well that was far fetched.
Varð ekki hringurinn þess valdandi að Bilbo eltist ekki heldur yngdist? Svo að hann ætti ekki að vera svo öðruvísi í Hobbitanum og byrjuninni á FOTR. Þegar Fróði kom til Rofadals í FOTR hafði Bilbo elst mikið á stuttum tíma, orðinn gamall og hrumur.
Neyðist til að nöldra smá. Þú ert að kvarta yfir því að það sé töluð enska í bandarískri bíómynd. Fannst það allt í lagi í Schind. þar sem það áttu nánast allir að tala sama tungumálið. Það er verra ef allir tala ensku með mismunandi hreim. Svo áttu ekki að vera að kvarta yfir öðrum tungumálum þegar þú getur ekki tjáð þig á íslensku án þess að nota enskuslettur :)
Svo hefur líka komið út íslensk þýðing á The Regulators eftir Bachman. Örvænting (Desperation), Rose Madder, man ekki hvað hún heitir á íslensku. Umsátrið heitir Cujo á ensku og háskaleikur heitir Gerald´s game.
Hitler var ekkert verri en hver annar. Gyðingahatur var algengt í Evrópu á þessum árum og í kringum Hitler söfnuðust verulega vondir menn (eins og Reinhard Heidrich og fleiri) sem sáu tækifæri til illskuverka og gripu það. Það er til bók sem heitir Að Hetju Höll og hún fjallar um ævi Hitlers frá fæðingu fram að valdatöku hans. Þið ættuð að lesa hana.
Þegar þú segir að þorskastríðin myndu aldrei hafa gerst ef við hefðum her, þá gleymdir þú að taka það með í reikninginn að bretar hafa miklu, miklu, miklu stærri her og enga ástæðu til að líta illa út á alþjóðavettvangi fyrir að beita honum.
Einföld lausn til að gera keppnir meira spennandi: Í staðin fyrir tímatökur þá á að draga um það hvar hver keppandi lendir. Þá geta þeir bestu lent aftast o.sv.f. Þar af leiðir að meira verður um framúrakstra, árekstra og læti.
Ástæðan fyrir því að Íslendingar eru fljótir að tileinka sér tækninýjungar er sú að í margar aldir þróuðumst við ekki neitt, s.br. við lifðum í moldarkofum fram yfir 1900. Svo að við erum bara að bæta okkur það upp núna.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..