Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

nr33
nr33 Notandi síðan fyrir 19 árum, 4 mánuðum 31 ára karlmaður
786 stig
I ran like hell faster than the wind

Vináttuleikir? (16 álit)

í Manager leikir fyrir 17 árum
Svona er mál með vexti að ég er að þjálfa Brazil. En vandamálið er að það er svo mikið af dögum þar sem ekkert er að gerast og þá vil ég hldst að spila vináttu leiki, eimitt núna er það 100 dagar í vináttuleik við Norðmenn. Svo ég spyr er hægt að fjölga vináttuleikjum? Get ég boðið t.d öðrum landsliðinum að keppa við mig eða eitthvað? Bætt við 30. mars 2007 - 16:38 ég er í FM 2007!

Ísland - Tyrkland KVK (1 álit)

í Hokkí fyrir 17 árum, 1 mánuði
Rétt í þessu var að ljúka leik Íslands og Tyrklands. Íslensku stúlkurnar unnu með 12 mörkum gegn 1. Fyrsta leikhluta unnu stelpurnar 3 - 0. Í öðrum leikhluta var það sama upp á teningnum, þ.e. íslenska liðið skoraði þrjú mörk gegn engu marki tyrkjanna. Í síðasta leikhluta komu stelpurnar svo mjög ákveðnar til leiks og vannst hann með sex mörkum gegn einu. Stelpunum hefur því ekki leiðst í lok leiksins, en eins og þeir vita sem hafa farið á heimsmeistarakeppni er þjóðsöngur liðsins sem vann...

Ísland - Króatía (0 álit)

í Hokkí fyrir 17 árum, 1 mánuði
Leik Íslands og Króata á heimsmeistaramótinu í Rúmeníu er lokið. Leiknum lauk með sigri Króata sem skoruðu þrjú mörk gegn engu marki íslenska liðsins. Staðan eftir fyrsta leikhluta var 1 - 0 Króötum í vil. Tvisvar í leikhlutanum hefur íslenska liðið leikið með tvo leikmenn í refsiboxinu en í bæði skiptin náð að halda jöfnu. Í öðrum leikhluta náðu Króatar að bæta við tveimur mörkum. Í síðasta leikhlutanum náði íslenska liðið að halda jöfnu og endaði því leikurinn einsog áður sagði 3 - 0...

Ferðasjóður íþróttafélaga í höfn. (0 álit)

í Íþróttir fyrir 17 árum, 1 mánuði
Á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun var ákveðið að koma á fót ferðasjóði íþróttafélaga í samræmi við tillögur nefndar sem menntamálaráðherra fól að fjalla um ferðakostnað íþróttafélaga. Eftirfarandi frétt birtist á vef menntamálaráðuneytisins og er birt hér óbreytt. Á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun var ákveðið að koma á fót ferðasjóði íþróttafélaga í samræmi við tillögur nefndar sem menntamálaráðherra fól að fjalla um ferðakostnað íþróttafélaga. Í kjölfar þingsályktunartillögu sem...

Ísland - Rúmenía KVK (0 álit)

í Hokkí fyrir 17 árum, 1 mánuði
Íslenska kvennaliðinu lék í dag gegn Rúmenum í 4. deild heimsmeistarakeppninnar. Leiknum er lokið með sigri Rúmena sem skoruðu 5 mörk gegn 2 mörkum Íslendinganna. Staðan eftir fyrsta þriðjung er 1 - 0 okkar stúlkum í vil. Það var íshokkíkona síðasta árs, Hanna Rut Heimisdóttir, sem skoraði mark Íslands. Í öðrum þriðjung hallaði heldur á okkar konur og staðan eftir hann var 4 - 1 Rúmenum í vil. Lokastaðan var síðan 5 - 2 eins og áður sagði. Anna Sonja Ágústsdóttir var valinn besti leikmaður...

Ísland - nýja sjáland KVK (1 álit)

í Hokkí fyrir 17 árum, 1 mánuði
Þá er fyrsta leik mótsins í Rúmeníu lokið hjá kvennaliðinu og ekki byrjar það nú vel því leikurinn tapaðist 10 - 0. Meira síðar. tekið af íhí.is Bætt við 26. mars 2007 - 21:40 Þá er fyrsta leik mótsins í Rúmeníu lokið hjá kvennaliðinu og ekki byrjar það nú vel því leikurinn tapaðist 10 - 0. Í fyrsta leikhluta voru skoruð 4 mörk, 2 í öðrum og síðan 4 mörk í þriðja og síðasta leikhluta. Besti leikmaður íslenska liðsins var kosin Rósa Guðjónsdóttir en hún fékk loksins hokkítöskuna sína í fyrsta...

SA vs Björninn (2 álit)

í Hokkí fyrir 17 árum, 1 mánuði
SA og Björninn mættust í gærkvöldi í fjörugum leik á Akureyri. Heimamenn unnu leikinn með 10 mörkum gegn 3 en leikurinn var frekar jafn alveg fram í 3. lotu. SA hafði yfirhöndina allan tímann og skoraði fyrstu tvö mörk leiksins og einu mörk 1. lotu. Í 2. lotu var jafnræði með liðunum og bæði lið skoruðu tvö mörk og því var staðan 4 – 2 fyrir SA þegar 3. og síðasta lotan hófst. Bjarnarmenn mættu til leiks aðeins með 8 útileikmenn og því má gera skóna (eða skautana) að þeir hafi verið orðnir...

KVK landsliðið komar til RÚM (0 álit)

í Hokkí fyrir 17 árum, 1 mánuði
Stelpurnar mættu stundvíslega á flugvöllinn og vel gekk að tékka inn. Við uppgötvuðum hins vegar að ein liðskonan hafði ekki fengið búninginn sinn afhentann og hann var á ÍHÍ skrifstofunni. Elínborg tækjavörður var ekki mætt svo það var hringt í hana í snarhasti og lán í óláni þá hafði sprungið hjá henni og hún var bara komin í Hafnarfjörð. Elskulegi Hallmundur okkar var ræstur út og eftir mikið stress gekk allt upp. Fararstjórnin var því síðust um borð í flugvélina með þá trú að “Fall er...

Íslenska Kvenna landsliðið! (1 álit)

í Hokkí fyrir 17 árum, 1 mánuði
Í morgun hélt kvennalandsliðið af stað til Miercurea Ciuc í Rúmeníu til keppni í 4. deild Heimsmeistaramótsins í íshokkí. LIðið mun alls spila fimm leiki og mótherjarnir verða Nýja Sjáland, Rúmenía, Króatía, Tyrkland og Eistland. Fyrsti leikur liðsins verður opnunarleikur mótsins á mánudaginn 26. mars gegn Nýja Sjálandi. Liðið hefur einu sinni áður tekið þátt í heimsmeistararmóti og þá í Nýja Sjálandi fyrir tveimur árum síðan. Ekki er mikið vitað um andstæðinga okkar í þessu móti en Ísland...

SR vs Björninn (7 álit)

í Hokkí fyrir 17 árum, 1 mánuði
Segja má að sóknarleikurinn hafi verið í fyrirrúmi þegar lið SR-inga og Bjarnarins mættust í gærkvöld og úrslitin voru eftir því. Bjarnarmönnum sárvantaði sigur, í það minnsta jafntefli, til eiga áfram möguleika á að komast í úrslitakeppnina, því má segja að þrátt fyrir að vera undir allan leikinn þá hafi þeir aldrei gefist upp. Á endanum höfðu SR-ingar þó sigur en þeir skoruðu 9 mörk gegn 8 mörkum gestanna. Strax á annarri mínútu kom kínafarinn Egill Þormóðsson SR-ingum yfir og fljótlega...

SA vs SR 2 flokkur og 3 flokkur (0 álit)

í Hokkí fyrir 17 árum, 1 mánuði
2.flokks leikirnir fóru 9-2 og 6-3 fyrir SA og 3.flokks leikirnir enduðu 4-7 fyrir SR sá fyrri og sá seinni með jafntefli 3-3. tekið af sasport.is

Ísland-Spánn (4 álit)

í Hokkí fyrir 17 árum, 1 mánuði
þetta birtist í dag á heima síðu ÍHÍ kanski frekar seint en svona það. 1. lota leiksins var mjög spennandi og okkar menn sýndu á köflum algeran snilldarleik, voru agaðir og sjálfsöruggir. Allt leit út fyrir markalausa lotu en þegar 23 sek voru eftir af lotunni skoraði Egill Þormóðsson eftir sendingu frá Þorsteini Björnssyni og gaf liðinu gott nesti inni í leikhléið. Í 2. lotu var allt í járnum og mikið jafnræði með liðunum og ef eitthvað var voru Íslendingar sterkari. Lotunni lauk með...

Þáttur? annað? (17 álit)

í Spenna / Drama fyrir 17 árum, 1 mánuði
Núna er ég í pínu veseni. Svo er mál með veksti að ég missti af seinasta þætti af prison sem var í sjónvarpinu! ARG!! svo ég spyr veistu þú hvaða númer þáttur var seinast? og líka afhverju er ekki Prison á þriðjudaginn sem er að koma?

Í bann út tímabilið eftir hrottabrot - Með myndbandi (31 álit)

í Hokkí fyrir 17 árum, 1 mánuði
Chris Simon, leikmaður NY Islanders í NHL-deildinni í íshokkí í Bandaríkjunum, hefur verið dæmdur í leikbann sem gildir út leiktíðina fyrir viðurstyggilegt brot á Ryan Hollweg, leikmanni NY Rangers. Atvikið átti sér stað í leik liðanna á fimmtudag og sló Simon Hollweg með kylfunni, beint í andlitið. Hollweg vankaðist við höggið og hlaut skurð á kinnina sem þurfti að sauma saman. Hann náði þó að halda leik áfram en gat ekki beitt sér af fullum krafti. Bannið er það lengsta sem dæmt hefur...

HM KVK á AK 2008? (5 álit)

í Hokkí fyrir 17 árum, 1 mánuði
Íþróttaráði Akureyrar barst nýlega erindi frá stjórn Íshokkísambands Íslands þar sem óskað er eftir því að bæjaryfirvöld á Akureyri taki til skoðunar að leggja ÍHÍ lið til að halda heimsmeistarakeppni kvenna í íshokkí á Akureyri vorið 2008 og að Skautafélaginu verði gert kleift að ráðast í þær framkvæmdir á Skautahöllinni sem teljast nauðsynlegar. Íþróttaráð ræddi mál þetta á síðasta fundi sínum og fagnaði áformum Íshokkísambands Íslands um að halda mótið. Ráðið hefur óskað eftir því við...

U-18 fréttir (0 álit)

í Hokkí fyrir 17 árum, 1 mánuði
Nú þegar klukkan er að ganga tvö að nóttu til hérna í Beijing er mannskapurinn á fullu að pakka og ganga frá herbergjunum. Þetta er því búinn að vera langur dagur sem hófst um áttaleytið í morgun með því að mannskapurinn var ræstur og farið í morgunmat og þaðan á æfingu. Rétt einsog vanalega, þegar leikið er seint að degi til, hvildi mannskapurinn sig um miðjan daginn. Fáeinir fengu leyfi til að fara í bæinn og klára að versla en flestir virtust búnir að vera að fá nægju sína af því. Uppúr...

U-18 hvíldardagur2 (0 álit)

í Hokkí fyrir 17 árum, 1 mánuði
Í dag var seinni frídagurinn á mótinu og ákvað fararstjórn að hann yrði hafður í frjálslegra lagi. Partur af leikmönnunum fór í skoðunarferð á Torg hins himneska friðar og fleiri staði meðan afgangurinn lagði leið sína á svokallaðan prúttmarkað. Báðum hópum held ég að hafi þótt mikið til koma á sinn hátt. Þeir sem fóru í skoðunarferðina fóru svo þegar líða fór á daginn einnig í verslunarferð og segja má að farangur liðsins hafi þyngst all nokkuð á þessum laugardegi. Um klukkan þrjú var...

meira um Ísland - Nýjasjáland (2 álit)

í Hokkí fyrir 17 árum, 1 mánuði
Bæði lið fóru heldur hikandi af stað í leikinn og erfitt að greina í upphafi hvort liðið væri sterkara. Skot á mörk voru svipuð og liðin skiptust á að sækja. Fyrsta mark leiksins kom ekki fyrr á 13. mínútu leiksins en þá skoraði Kolbeinn Sveinbjarnarson eftir sendingu frá Þorsteini Björnssyni. Nokkrum mínútum síðar bætti svo Mattías Sigurðsson við öðrum marki í power play eftir sendingu frá Agli Þormóðssyni og svo aðeins nokkrum sekúndum síðar skoraði fyrirliðinn Þorsteinn Björnsson með...

Ísland - nýja sjáland (4 álit)

í Hokkí fyrir 17 árum, 1 mánuði
Íslendingar unnu í dag Nýsjálendinga með 5 mörkum gegn 2. Staðan eftir fyrsta þriðjung var 3 - 0 og í tveimur næstu þriðjungum bættu strákarnir við sitthvoru markinu. Markaskorarar Íslands voru: Matthías Skjöldur 2 Þorsteinn Björnsson Kolbeinn Sveinbjarnarson Andri Steinn Hauksson Nánari fréttir af leiknum þegar leikskýrslan kemur í hús. tekið af íhí.is

meira um Kína - Ísland (0 álit)

í Hokkí fyrir 17 árum, 1 mánuði
Það er óhætt að segja það að leikurinn í gærkveldi gegn Kína hafi verið vonbrigði. Við unnum tvær lotur en töpuðum einni heldur stórt. Kínverjar byrjuðu leikinn af miklum krafti og virtust koma miklu ákveðnari til leiks en íslenska liðið. Kínverjarnir létu okkar menn strax finna fyrir því með því klára allar tæklingar og við það slokknaði aðeins á okkar mönnum. Sem dæmi var Kolbeinn Sveinbjarnarson tæklaður á opnum ís sem olli því að hann fór í heilt heljastökk á ísnum en slíkar tæklingar...

U-18 fréttir (0 álit)

í Hokkí fyrir 17 árum, 1 mánuði
Sergei þjálfari hafði ákveðið að taka daginn rólega og því var ræst frekar seint eða rétt um klukkan níu. Morgunmatur var etinn og síðan haldið út í rútu. Áfangastaðurinn var garður nálægt skautahöllinni en í stað ísæfingar var farið í göngutúr þar en einnig reyndu menn fyrir sér í gogart bílum og ýmsu fleiru. Á meðan fóru fararstjórar að leita að einhverju fyrir liðið að gera á laugardaginn, en þá er seinni frídagurinn í mótinu. Allir voru síðan mættir um tólfleytið í hádegismat ásamt því...

U-18 tap (0 álit)

í Hokkí fyrir 17 árum, 1 mánuði
Góðan dag, drengirnir okkar eru nú í morgunsárið (að okkar tíma) að leika sinn þriðja leik og nú gegn heimamönnum Kínverjum, Heldur hefur hafragrauturinn verið þungur í fæturna því að við erum 0 - 5 undir eftir fyrsta leikhluta. Nú er bara fyrir okkar menn að býta í skjaldarrendur og gyrða í brók og láta finna fyrir sér í öðrum og þriðja hluta. Staðan eftir annan leikhluta er 1 - 5, það er jákvætt að það er búið að stöðva kína mennina en nú þurfum við að bæta við. Því miður tókst okkar...

U-18 hvíldardagur (0 álit)

í Hokkí fyrir 17 árum, 1 mánuði
Í dag var frí frá keppni hér í Kína, en það breytti engu um það að menn fóru snemma á fætur, því ferðinni var heitið á Kínamúrinn strax eftir morgunmat. Þegar þangað kom var tekið til við að ganga upp og segjast verður einsog er að þetta var heljarinnar puð. Sumir leikmenn sögðu að þetta væri verra en verstu tröppuæfingar. Þessi rúmlega 6.000 kílómetra veggur er náttúrulega “algjör bilun” einsog einhver komst að orði. Menn voru samt ánægðir með að hafa komið á þetta mikla mannvirki og...

Hokkí U-18 (0 álit)

í Stórmót fyrir 17 árum, 1 mánuði
Drengirnir okkar í undir 18 ára landsliðinu eru núna að leika við Suður Afríku og staðan eftir fyrsta leikhluta er 4 - 0 fyrir okkur. Mörk Íslands í fyrsta leikhluta skoruðu Egill 2, Kolbeinn 1 og Sigurður Árna 1, frekari upplýsingar verða settar hér inn um leið og þær berast. Nú voru að berast fréttir eftir annan leikhluta og staðan er 11 - 1 fyrir okkur þeir sem að bættu við mörkum voru: Kolbeinn 2, Pétur 2,Andri Mikalels 1, Orri 1, Gunnlaugur 1. Lokastaða í leiknum varð 14 - 1 fyrir...

Hokkí U-18 (0 álit)

í Stórmót fyrir 17 árum, 1 mánuði
Fyrsti leikur Íslands hér í Kína var gegn okkar fornu fjendum Tyrkjum. Það kom þó fljótt í ljós að okkar drengir voru töluvert betri en mótherjarnir og fyrsta markið leit dagsins ljós strax á 3. mínútu leiksins en þá skoraði Andri Mikaelsson sitt fyrsta mark fyrir Íslands hönd í sinni fyrstu skiptingu í sínum fyrsta landsleik, ekki slæm byrjun. Sendinguna á hann átti Ragnar Kristjánsson. Liðið spilaði mjög vel, lét pökkinn ganga og yfirspiluðu Tyrkina á tímabili og mörkin komu í öllum...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok