Talandi um að labba á eitthvað. Ég hef tvisvar sinnum “séð” Magnús Ver(sem var einu sinni sterkasti maður heimsins) sem er ekki frásögu færandi nema að því leyti að hann er nú ekki beint fyrirferðalítill maður, samt var ég einu sinni næstum búin að labba á hann í Kringlunni þannig hann þurfti að sveigja framhjá mérþví ég sá hann ekki(bróðir minn sem var með mér sagði mér það) og í hitt skiptið stóð hann beint fyrir framan mig inni í videoleigu og ég tók heldur ekki eftir honum þá.