Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Aðþrengdar eiginkonur

í Sápur fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Síðasti þátturinn í þessarri seríu var sýndur fyrir viku, en ég held að hann sé endursýndur á RÚV í kvöld kl 23.40. Næsta sería kemur örugglega ekki fyrr en eftir áramót hér, það á samt að byrja að sýna hana í Bandaríkjunum í september.

Re: Hjáálp! síminn minn datt oní klósettið;/

í Farsímar fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Svekk. Hvernig þurrkaðirðu símann? Þegar símar blotna (ég hef sett einn í þvottavél og vinur minn missti sinn í klósettið heima hjá mér) á að taka batteríið úr þeim og setja bæði batteríið og símann á ofn og hafa það þar í dágóðan tíma. Þá á þetta að vera allt í lagi, þú átt allavega að geta kveikt á símanum og svoleiðis.

Re: Einkenni heilahristings?

í Tilveran fyrir 18 árum, 6 mánuðum
http://www.doktor.is/Article.aspx?greinid=425

Re: Galtalækur

í Tilveran fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Tjaldsvæðið átti alltaf að verða opið, en það er engin hátíð þannig séð eins og hefur verið, og engin skipulögð dagskrá.

Re: Ný Trúarbrögð ?

í Deiglan fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Ha? Átti þetta að fara til mín? Ég er bara alveg ágætlega að mér í sögu og er orðin stúdent í henni takk fyrir. Þú virðist hinsvegar hafa skrópað í fermingarfræðsluna.

Re: Bankaveseeeen

í Tilveran fyrir 18 árum, 6 mánuðum
… afhverju fékkstu þér ekki bara debetkort í sparisjóðnum?

Re: Hjáálp! síminn minn datt oní klósettið;/

í Farsímar fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Ef þú varst með númerin vistuð á SIM kortið þá á að virka að setja kortið bara í nýjan síma.

Re: Ný Trúarbrögð ?

í Deiglan fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Þetta er einmitt það sem trúleysingjar hafa gagnrýnt svo mikið, að kristnir virðast bara geta valið og hafnað það sem þeim sýnist úr ritningum og reglum kristninnar.

Re: Ný Trúarbrögð ?

í Deiglan fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Maður prentar út eyðublað af hagstofan.is, fyllir það út og sendir það svo annaðhvort í pósti eða í faxi til Hagstofunnar. Og til hamingju, þá ertu skráður eins og þú vilt vera. Mjög einfalt. Tékkaðu á vantru.is, þeir eru með leiðbeiningar.

Re: Ný Trúarbrögð ?

í Deiglan fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Neibb, ekki krónu.

Re: net perrar

í Tilveran fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Þessar gera það greinilega ekki, heldur spjölluðu heillengi sýnist mér…

Re: Ný Trúarbrögð ?

í Deiglan fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Þetta er bölvuð vitleysa sem þið voruð að heyra. Þessi upphæð rennur ekki til guðfræðideildarinnar, heldur í menningarsjóð háskólans.

Re: Hvert á svo að fara?

í Djammið fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Ég verð að vinna tvöfaldar vaktir ALLA helgina, í kaupfélaginu og á barnum. Geggjað fjör sko. Ég átti meiraðsegja að vera í fríi þessa helgi en bað um vinnu afþví mig langar ekki á neina subbuútihátíð. Langar samt til að kíkja á Sigló á sunnudagskvöldið á Pál Óskar.

Re: net perrar

í Tilveran fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Mér finnst nú frekar að það ætti að banna fólk af netinu sem er nógu heimskt til að samþykkja hvern sem er á msn.

Re: í hvaða skóla ertu?

í Skóli fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Er að fara að byrja í MH í haust, á þriðja ári.

Re: Draugar eða gallar?

í Tilveran fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Ég fór einu sinni á fyrirlestur hjá þessum gaur (eða ég held það hafi verið þessi gaur, annars finnst mér þessir rugludallar allir eins), og það endaði á að ég gekk út. Ég fékk einmitt nóg þegar hann fór að tala um þessa ljósálfa á myndunum. Þvílík vitleysa, ég er hrædd við svona menn.

Re: Síldarhátíðin á sigló

í Tilveran fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Já mig grunar það nú. Finnst slatti af fólki vera að tala um að kíkja á þetta.

Re: Hvað heitir þetta lag?

í Músík almennt fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Samkvæmt kommentunum þá heitir það Watch this og er með Swollen Members.

Re: Síldarhátíðin á sigló

í Tilveran fyrir 18 árum, 6 mánuðum
http://www.siglo.is/sildarhatid/ Frítt, og Páll Óskar :D Bætt við 1. ágúst 2007 - 12:18 Ég verð að vinna alla helgina, en er alvarlega að hugsa um að skreppa aðeins á sunnudagskvöldinu og kíkja á Palla.

Re: glansandi leggings?

í Tíska & útlit fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Það eru allavega svona spandex leggings í Spútnik.

Re: Smá aðstoð

í Húðflúr og götun fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Mér finnst úlnliðurinn mun flottari.

Re: Sambíón

í Tilveran fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Þetta er bara svo subbó staður. Get ekki útskýrt það betur. Enda er ég farin þaðan, fyrir fullt og allt, og það er yndislegt.

Re: Sambíón

í Tilveran fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Hah glætan. Það er ekkert alvöru á Skítakrók.

Re: Nærföt?

í Tíska & útlit fyrir 18 árum, 6 mánuðum
La Senza.

Re: Besti bjórinn / Ódýrasti ?

í Djammið fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Það er nú langoftast þannig, að því ódýrari sem bjórinn er, því minna áfengismagn er í honum.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok